Skipulags- og umhverfisráð

38. fundur 16. janúar 2026 kl. 09:00 - 10:55 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Magnús Örn Sigurjónsson Formaður
  • Þuríður Lilja Valtýsdóttir Nefndarmaður
  • Óðinn Gíslason Nefndarmaður
  • Ólafur Ögmundsson Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.ASK BR Austurbyggð - Hamrahverfi

2.ASK ÓBR S4 - Ránarbraut 3

2510001

Viðbrögð Skipulagsstofnunar við breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps varðandi M8, Ránarbraut 3.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að undirbúa lýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu.

3.DSK - Vesturhluta Víkurþorps

2009002

Skipulagsfulltrúi kynnir tillögu að breytingu á afmörkun fyrir deiliskipulagssvæði Vesturhluta Víkur og Fitina.
Ráðið samþykkir tillöguna með þeirri breytingu að afmörkun vesturhluta nái yfir íbúðarhús frá Víkurbraut 24-14.

4.Staða vatnsveitu

2601003

Lögð fram greinargerð slökkviliðsstjóra. Ívar Páll Bjartmarsson slökkviliðsstjóri kom á fundinn og kynnti efni greinargerðarinnar.
Ráðið þakkar slökkviliðsstjóra fyrir yfirferðina og leggur til að þegar verði hafin skoðun á mögulegum lausnum til að unnt verði að tryggja nægilegt slökkvivatn í öllum hverfum bæjarins.

5.Víkurbraut 26 - skilti

2601004

Ingólfur Ragnar Axelsson f.h. Vík Tröll Hótel ehf. sækir um leyfi fyrir skilti að Víkurbraut 26, í samræmi við framlögð gögn.
Ráðið fellst ekki á uppsetningu skiltisins vegna umfangs og áhrifa á ásýnd umhverfis og mælist til þess að það verði fjarlægt. Vilji umsækjandi setja upp nýtt skilti þá mælist ráðið til þess að send verði ný umsókn með hönnun sem samræmist betur ásýnd hverfisins.

6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8

2601001F

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Ekki er gerð athugasemd við leyfi fyrir 85 gesti í veitingarými að Sunnubraut 15.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Afgreiðslu málsins var frestað á 7. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið gerði ekki athugasemd við málið á 37. fundi sínum og staðfesti sveitarstjórn afgreiðslu ráðsins á 687. fundi sínum.
    Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Viðkomandi iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Afgreiðslu málsins var frestað á 7. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði stöðuleyfi til árs á 37. fundi sínum og staðfesti sveitarstjórn afgreiðslu ráðsins á 687. fundi sínum.
    Samþykkt er að veita stöðuleyfi til 30.11.2026.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Ekki er gerð athugasemd við afskráningu mannvirkisins.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Ekki er gerð athugasemd við afskráningu mannvirkjanna.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Ekki er gerð athugasemd við flutning á mannvirkinu Klettsvegur 3E innan lóðarinnar Klettsvegur 3.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Afgreiðslu málsins er frestað.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8 Málinu var frestað á 2. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið samþykkti að setja málið í grenndarkynningu á 30. fundi sínum. Sveitarstjórns staðfesti afgreiðslu ráðsins á 677. fundi sínum. Málið var grenndarkynnt og ekki gerð athugasemd. Sveitarstjórn samþykkti að veitt yrði byggingarleyfi á 687. fundi sínum.
    Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:55.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir