Félagsleg ráðgjöf

Markmið félagslegrar ráðgjafar er m.a. að vinna að lausn félagslegra og persónulegra erfiðleika sem og að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindi. Félagsleg ráðgjöf getur verið veitt samhliða fjárhagslegri aðstoð og getur falið í sér ráðgjöf vegna fjármála, húsnæðismála, uppeldismála, skilnaðarmála, ættleiðingarmála, veikinda, atvinnuleysis, samskiptaerfiðleika í fjölskyldu, áfengis-og vímuefnavanda o.fl.

Sækja skal um félagslega ráðgjöf hjá felagsmal@felagsmal.is, nánari upplýsingar eru veittar í síma 487-8125.

Tilkynning til barnaverndar - Ertu í vafa hvort þú eigir að tilkynna? Ráðgjafar barnaverndar félagsþjónustu RVS veita ráðleggingar og hægt er að ræða við ráðgjafa barnaverndar nafnlaust ef þess er óskað.