Fjölmenning

Íbúasamsetning Mýrdalshrepps hefur breyst umtalsvert á síðustu árum og er hreppurinn gríðarlega stoltur af því fjölbreytta og fjölmenningarlega mannauði sem hann býr yfir. Sumarið 2025 voru íbúar sveitarfélagsins 1148 talsins og þar af 67% íbúa  af erlendum uppruna.

Mýrdalshreppur hefur lagt aukna áherslu á málefni innflytjenda og gefið nýbúum aukin tækifæri til verða virkir þátttakendur í samfélaginu, en til dæmis má nefna stofnun enskumælandi ráðs haustið 2022 og undirsíðuna ,,Welcome to Mýrdalshreppur”. Þá hefur sveitarfélagið einn þátttakanda í samstarfsverkefni SASS um sjálfbæra lýðfræðilega þróun á miðsvæði Suðurlands ásamt sveitarfélögunum Rangárþingi eystra, Skaftárhreppi og Sveitarfélaginu Hornafirði.

  • Verkefnastjóri Inngildingar og íslensku er Halldóra Kristín Pétursdóttir
  • fjolmenning@vik.is