Skipulags- og umhverfisráð

31. fundur 02. maí 2025 kl. 09:00 - 11:20 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Magnús Örn Sigurjónsson Formaður
  • Þuríður Lilja Valtýsdóttir Nefndarmaður
  • Óðinn Gíslason Nefndarmaður
  • Ólafur Ögmundsson Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3

2504006F

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3 Samþykkt.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilheyrandi gjöld hafa verið greidd.

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3 Afgreiðslu málsins er frestað þar sem að deiliskipulag svæðisins er ennþá í vinnslu hjá sveitarfélaginu.

2.DSK Hestamannasvæði

2408015

Lögð er fram til samþykktar tillaga að nýju deiliskipulag fyrir hesthúsasvæði í Vík í Mýrdal eftir brugðist hefur verið við athugasemdum.

Hér er um að ræða nýtt deiliskipulag fyrir hestamannasvæðið í Vík og við gildistöku þess fellur fyrirliggjandi skipulag Hestamannasvæði í Vík úr gildi. Til þess að þrengja ekki að uppbyggingarmöguleikum í þéttbýlinu er svæðið fært til austurs. Innan skipulagssvæðisins er m.a. gert ráð fyrir hesthúsabyggð, keppnissvæði og reiðhöll.

Skipulagið var auglýst frá 18. nóvember 2024 til og með 6. janúar 2025.

Athugasemdir bárust frá Þorgerður Gísladóttir og Sunna Wiium. Umsagnir frá Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands(HSL), Veðurstofa Íslands(VÍ) og Minjastofnun Íslands(MÍ).
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.

3.DSK - Brekkur og Ás (Hótel Dyrhólaey)

2409010

Lögð er fram til samþykktar breyting á deiliskipulagi fyrir Hótel Dyrhólaey (VÞ27) í Mýrdal eftir að brugðist hefur verið við athugasemdum Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.

Breytingin snýr að skilgreiningu á byggingarreit og byggingarheimildir á lóð hótelsins, Brekkur 1 lóð L179560 auk þess sem lega lóðarinnar eru endurskilgreind m.t.t. uppmælinga á svæðinu. Samhliða eru skilgreindar afmarkanir lóðar Í2 og Í3 lagfærðar lítillega í takti við mælingar og byggingarreit Í3 breytt í takt við þau hús sem byggð hafa verið innan reitsins.

Skipulagið var auglýst frá 4. mars til og með 16. apríl 2025 og bárust engar athugasemdir en umsagnir bárust frá Slökkvilið Mýrdalshrepps(SM), Heilbrigðiseftirliti Suðurlands(HSL) og Vegagerðinni.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.

4.DSK Austurhlutinn í Vík (ÍB7, M6, M7, VÞ7, VÞ10)

2307001

Lögð er fram til samþykktar tillaga að deiliskipulagi Austurhlutinn í Vík (ÍB7, M6, M7, VÞ7, VÞ10) eftir að brugðist hefur verið við athugasemdum Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Vegagerðarinnar.

Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir Austurhlutann. Skipulagssvæðið er um 10 ha að stærð og er staðsett nokkuð miðsvæðis í Vík og liggur sitt hvoru megin við núverandi hringveg. Innan svæðisins eru göturnar Austurvegur, Smiðjuvegur og Sléttuvegur. Meginmarkmið skipulagsins er að skilgreina skipulag lóða fyrir verslun og þjónustu samkvæmt áætlunum gildandi aðalskipulags. Vík hefur lengi verið verslunar- og þjónustukjarni fyrir nærsveitir og með fjölgun íbúa og ferðamanna í Vík undanfarinn áratug hefur verslun og þjónusta á svæðinu aukist og mun áfram fjölga með enn frekari vexti og uppbyggingu ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.

Skipulagið var auglýst frá 4. mars til og með 16. apríl 2025 og bárust engar athugasemdir en umsagnir bárust frá Slökkvilið Mýrdalshrepps(SM), Heilbrigðiseftirliti Suðurlands(HSL) og Vegagerðinni.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.
Samþykkt: ÞLV, ÓG, DB, MÖS
SSÞ, ÓÖ og AHÓ sitja hjá

5.DSK - Austurbyggð Víkur

2109002

Hulda Jónsdóttir kom á fundinn og kynnti drög að deiliskipulagi fyrir Austurbyggð.
Ráðið þakkar Huldu fyrir kynninguna.

6.Sunnubraut 15 - spennistöð og hleðslustöðvar

2504020

Auðbert og Vigfús Páll ehf sækir um leyfi til uppsetningar spennistöðvar og hleðslustöðva á lóðinni Sunnubraut 15, í samræmi við framlögð gögn.
Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að setja málið í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið mælist til þess að aflað verði umsagnar frá RARIK í tengslum við uppsetningu spennustöðvar.

7.Umsókn um stofnun lóðar undir lífdíselframleiðslu

2504017

Gísli Daníel Reynisson f.h. 0rkusjálfbærni ehf. óskar eftir stofnun lóðar undir lífdíselframleiðslu, í samræmi við framlögð gögn.
ÓG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ráðið gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar. Ráðið leggur til að settir verði skilmálar um að sett verði mön utan um svæðið. Jafnframt leggur ráðið til að vegtenging verði skoðuð í samræmi við fyrirhugaðar breytingar á tengingu við þjóðveg fyrir sandverksmiðjuna við Uxafótarlæk.
Ráðið leggur til að undirbúin verði nauðsynleg skipulagsvinna fyrir svæðið og felur skipulagsfulltrúa að undirbúa málið.
Samþykkt: MÖS, DB, ÞLV, ÓÖ, SSÞ
Á móti: AHÓ

8.Umsókn um stofnun lóðar

2504018

Björn Sveinnsson f.h. Loðmundur landeigendafélag ehf. óskar eftir stofun lóðar í samræmi við framlögð gögn.

Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ráðið gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar.

9.Sunnubraut 15 - umsókn um stöðuleyfi

2504019

Auðbert og Vigfús Páll ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir tveir 40ft. gámar undir geymslu, í samræmi við framlögð gögn.
Skipulags- og umhverfisráð heimilar fyrir sitt leyti að veitt verði stöðuleyfi skv. umsókninni.

Fundi slitið - kl. 11:20.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir