Sólheimajökulsmelar - Deiliskipulagsbreyting

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu um breytingu á deiliskipulagi fyrir Sólheimajökulmela.

Í breytingunni felst að deiliskipulagssvæðið er stækkað og tekur nú til 5,3 ha. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á húsum til að þjónusta ferðamenn og ferðaþjónustuaðila sem nýta svæðið og stækkun á bílastæði.

Tillaga þessi liggur frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík eða má nálgast hér frá 3. nóvember 2021 til og með 17. desember 2021.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 17. desember 2021.

 

George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshrepps