Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagsbreytingu á Ytri-Sólheimum 1A í Mýrdal.
Ytri-Sólheimar 1, 1A og lóð - Deiliskipulagsbreyting
Deiliskipulagstillagan nær yfir 8,45 ha og tekur til Ytri-Sólheima 1 (163037), hluta Ytri-Sólheima 1A (226302) og Ytri-Sólheima lóð (210360). Skipulagsbreytingin felst í því að afmarka tjaldsvæði fyrir ferðabíla og -vagna, fjölga lóðum og breyta og fjölga byggingareitum innan svæðisins.
Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 28. september til og með 9. nóvember 2026.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 9. nóvember 2026.
George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps