Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hverfið Bakka í Vík í Mýrdal.

Deiliskipulagstillaga gerir ráð fyrir nýju deiliskipulagi á Bökkum í Vík en með þessu deiliskipulagi fellur úr gildi deiliskipulag Mýrarbraut 13. Þannig fæst heildar deiliskipulag fyrir þetta svæði og þannig betur hægt að samræma uppbyggingu innan svæðisins sem skal vera í takt við aðliggjandi íbúðarbyggð.

Deiliskipulagstillagan liggur frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík, á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is  eða má nálgast hér: DSK Bakkar greinagerð og DSK Bakkar uppdráttur frá 24. maí til og með 5. júlí 2023.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 5. júlí 2023.

George Frumuselu

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Mýrdalshreppur