Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 – Breyting á þéttbýlisuppdrætti

Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028.

Breytingin snýr að landnotkunarbreytingu þar sem „opið svæði til sérstakra nota“ verður hluti íbúðabyggðar, skilgreint ÍS1 skv. aðalskipulagi.

Breytingartillagan liggur frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík, má nálgast hér og á Skipulagsstofnun frá 9. desember 2021 til og með 22. janúar 2022.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 22. janúar 2022. 

 

George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshrepps