Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi

Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreyting.

EFNISVINNSLUSVÆÐI VIÐ VÍK – Deiliskipulagsbreyting

Breytingin snýr að nýjum byggingarreit fyrir spennistöð raforku annars vegar og hins vegar að vatnstöku úr Uxafótalæk til að nota við efnisvinnsluna.

Tillaga þessar liggur frammi hjá fulltrúa skipulags-og byggingarmála í Mýrdalshreppi Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 28. júní til og með 8. ágúst 2023.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 8. ágúst 2023.

George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshreppur