Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögu.

Skammidalur 2 - Deiliskipulagstillaga

Deiliskipulagið nær yfir 1 ha. svæði og gerir ráð núverandi byggingum svæðisins auk þess sem skilgreindar eru frekari byggingarheimildir innan þess. Gert er ráð fyrir 2 lóðum innan svæðisins.

Tillaga þessar liggur frammi hjá fulltrúa skipulags-og byggingarmála í Mýrdalshreppi Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 26. apríl til og með 7. júní 2023.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 7. júní 2023.

George Frumuselu

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Mýrdalshreppur