Tón-Klúbbur N.13 - Yuichi Yoshimoto

Tón-Klúbbur Tónskóla Mýrdalshrepps heldur áfram að gleðja og hvetja ungt fólk til tónlistarsköpunar og hlustunar í góðum félagsskap.

Miðvikudaginn, 25.febrúar kl.17:45 í Leikskálum fáum við að njóta samveru og píanóleiks Yuichi Yoshimoto. Hann stundaði nám í píanóleik og tónsmiði við Tónlistarháskólann í Tókýó og lauk meistaragráðu í tónsmíðum frá sama skóla og Listaháskóla Íslands. Samhliða störfum sínum sem píanóleikari hefur hann verið virkur tónskáld og leitast við að tengja klassíska hefð við samtímatjáningarform, svo sem raftónlist og hljóðrýmisverk. Verk hans hafa verið flutt á ýmsum hátíðum, meðal annars Shinonome’s Fanfare (2021), Kapsel (2022) og píanótríóið Volcano (2023). Árið 2025 hlaut hann fyrstu verðlaun í píanó- og tónsmíðadeild á UK International Music Competition, auk fjölda alþjóðlegra viðurkenninga í tónsmíðum.

Yuichi starfar sem tónlistarkennari við Tónskóla Mýrdalshrepps.

Þetta er viðburður sem nærir hjartað og hvetur ungt fólk til að uppgötva fjölbreytaleika tónlistarinnar.

Allir eru velkomnir – nemendur, foreldrar og tónlistaráhugafólk á öllum aldri.

Hugmynd og stjórn: Alexandra Chernyshova
Í samstarfi við félagsheimilið Leikskálar

Komdu og leyfðu þér að njóta – tónlistin sameinar okkur öll.