Jóhanna og Jólakettirnir snúa aftur!

Vegna fjölda áskorana snúa Jóhanna og Jólakettirnir aftur – og í þetta sinn ætla þau að leggja land undir fót!
Þessi skemmtilegi hópur, skipaður hæfileikaríku tónlistarfólki úr Mýrdalnum, ætlar að færa jólastemninguna um Suðurlandið með glænýrri tónleikadagskrá þar sem gleði, hlýja og töfrar jólanna verða í fyrirrúmi.
Nýir tónleikar, kunnugleg andlit og sannkölluð jólastemning!
Hvort sem þið hafið sungið með okkur áður eða eruð að kynnast Jólaköttunum í fyrsta sinn, þá lofum við notalegri og eftirminnilegri stund í góðum félagsskap.
Hljómsveitameðlimir eru eftirfarandi:
  • Söngur - Jóhanna Ellen Einarsdóttir
  • Gítar og saxofónn - Einar Bárðarsson
  • Bassi - Bárður Einarsson
  • Hljómborð - Brian R. Haroldsson
  • Þverflauta - Deirdre Ana Stack Marques
  • Trommur - Jón Indriðasson
  • Rafmagnsgítar - Álvaro J. Sánchez