Fjórir kórar á Aðventutónleikum í Víkurkirkju

Sunnudaginn 7.desember verða haldnir hátíðarlegir Aðventutónleikar Mýrdælinga. Tveir kórstjórar, Alexandra Chernyshova og Anna Björnsdóttir sameina krafta sína ásamt einsöngvurum, hljóðfæraleikurum, sönghópum, tónlistarkennurum og nemendum Tónskóla Mýrdalshrepps í Vík.

 

Á efnisskrá eru fjölbreytt og þekkt jólalög í flutningi Syngjandi fjölskyldu, stúlknakórs Syngjandi alda, gítarhóps tónskólans, kammerkórs Tónskóla Mýrdalshrepps og kórs eldri borgara Syngjandi.

 

Aðventutónleikarnir byrja kl.17:00 og standa í rúma klukkustund. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Hver veit - kannski kemur jólasveinninn í heimsókn.