Starfshópur umhverfismála

2. fundur 08. september 2026 kl. 16:15 - 17:24 ráðhúsi Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Hjördís Rut Jónsdóttir
  • Guðjón Þorsteinn Guðmundsson
  • Páll Tómasson
  • Sif Hauksdóttir
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
  • Kristján Þórðarson
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Umgengni og umhirða bæjarlandsins

2606014

Rædd var skýrsla frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands eftir að ráðist var í álímingu bílhræja í bæjarlandinu.

Rætt var um götulýsingu í bænum. Starfshópurinn felur forstöðumanni áhaldahúss að ganga á eftir því við verktaka um að ráðist verði í nauðsynlegar úrbætur svo að þeim sé lokið fyrir Regnbogahátíðina.

Verktaki er væntanlegur í bæinn til þess að mála götur og gangstéttar.

Verktaki mun koma og mála Leikskála og húsnæði Víkurskóla og sundlaugarinnar.

Rætt var um ásýnd iðnaðarsvæðis og möguleika á úrbótum.

Rætt var um gáma á einkalóðum í Vík. Starfshópurinn óskar eftir því að fá samantekt frá byggingarfulltrúa um útgefin stöðuleyfi fyrir næsta fund.

Starfshópurinn leggur áherslu á að verktaka verði gert að ljúka við frágang á rotþróm á Smiðjuvegi.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að verktaki verði fenginn í að koma álímdum bílhræjum til förgunar. Ráðið leggur jafnframt til að fulltrúi HSL verði fenginn aftur til Víkur í frekari aðgerðir.
Starfshópurinn leggur til að samhliða málun á húsnæði sveitarfélagsins verði handriðið við Víkurá málað.
Starfshópurinn leggur til að útbúið verði skilti sem vísar að Víkurkirkju við gatnamót Suðurvíkurvegar og Hátúns.
Starfshópurinn felur sveitarstjóra að senda lóðarhöfum á Smiðjuvegi erindi og hvetja lóðarhafa til þess að ráðast í tiltekt á svæðinu og skoða uppsetningu á girðingum þar sem lausamunir eru geymdir.


Starfshópurinn vill færa kvenfélagi Hvammshrepps þakkir fyrir sumarblóm sem sveitarfélaginu voru færð að gjöf í sumar. Jafnframt vill hópurinn færa þeim íbúum þakkir sem hafa tekið þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins.

Starfshópurinn vill hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að taka höndum saman við að fegra bæinn fyrir Regnbogahátíðina sem haldin verður dagana 8.-11. október nk.

2.Uppsetning grenndarstöðvar við Smiðjuveg 12

2609005

Tekin fyrir tillaga um uppsetningu á grenndarstöð við Smiðjuveg 12.
Starfshópurinn samþykkir tillöguna.

Fundi slitið - kl. 17:24.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir