Starfshópur umhverfismála

1. fundur 19. júní 2026 kl. 11:00 - 12:10 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Páll Tómasson Formaður
  • Hjördís Rut Jónsdóttir
  • Guðjón Þorsteinn Guðmundsson
  • Deirdre Ana Stack Marques
  • Sif Hauksdóttir
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
  • Kristján Þórðarson
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Starfshópur umhverfismála

2606003

Erindisbréf lagt fram til kynningar.

2.Umgengni og umhirða bæjarlandsins

2606014

Fyrir fund höfðu fulltrúar úr hópnum farið í vettvangsskoðun um bæinn.

Rætt var um slátt í görðum og opnum svæðum og umhirðu almennt.

Ræddar voru hugmyndir að gróðursetningu trjáa og fegrun með blómaskreytingum á skilgreindum svæðum.



Starfshópurinn leggur til að auglýst verði eftir aðila til að taka að sér slátt á görðum í því augnamiði að efla getu áhaldahúss til að sinna öðrum verkefnum opnum svæðum bæjarins.
Ráðið telur jafnframt ástæðu til að árétta við þá sem leigja húsnæði á vegum sveitarfélagsins að þeim beri að slá garða sem fylgja íbúðum.
Rætt var um að skipulagður yrði hreinsunardagur þar sem íbúar kæmu saman til að hreinsa illgresi, kerfil og lúpínu. Samþykkt að stefnt verði að honum miðvikudaginn 24. júní frá kl. 16-20 og að boðið verði upp á grillaðar pylsur að verki loknu.

Starfshópurinn leggur til að aðilum á athafnalóðum í vesturbæ Víkur verði sent erindi þar sem þeir eru hvattir til þess að bæta ásýnd á lóðum með því að hreinsa af þeim lausamuni, illgresi og sorpi.

Starfshópurinn leggur til að gerður verði göngustígur frá bílastæði við Víkurkirkju upp á hæðina við kirkjugarðinn í samræmi við mynd.

Ræddar voru hugmyndir að fegrun hringtorgsins í Vík og að hönnuð verði skilti við sveitarfélagsmörkin. Sveitarstjóra falið að kanna kostnað og frekari útfærslur.

Fundi slitið - kl. 12:10.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir