Starfshópur um sjóvarnir

1. fundur 25. ágúst 2026 kl. 13:00 - 13:45 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Guðjón Þorsteinn Guðmundsson Formaður
  • Jóhannes Marteinn Jóhannesson Nefndarmaður
  • Magnús Örn Sigurjónsson Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Sjóvarnir í Víkurfjöru

2203006

Umræður um sjóvarnir í Víkurfjöru.

Jóhann Fannar Guðjónsson lögfræðingur sat fundinn og tók þátt í umræðum.

Farið var yfir stöðu mála og samskipti við ríkið til þessa.

Jóhannes fór yfir dýptarmælingar sem unnar voru fyrr á árinu og þróun fjörunnar síðustu ár.
- Starfshópurinn samþykkir að úttektaraðili verði fenginn til þess að meta ástand útihúsa austan við Smiðjuveg sem orðið hafa verið fyrir miklum skemmdum, í samstarfi við húseigendur. Verði húsin dæmd ónýt yrði þess farið á leit við Náttúruhamfaratryggingar að greiddar verði bætur svo hægt sé að fjarlægja húsin, enda útséð að þau eru enn í mikilli hættu vegna landrofs.
Samþykkt samhljóða.
- Starfshópurinn leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Fagradalsfjöru verði fellt úr gildi vegna landrofs á svæðinu.
Samþykkt samhljóða. - Jóhannes tók ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.
- Fulltrúar Vegagerðarinnar hafa boðið starfshópnum til fundar miðvikudaginn 26. ágúst.
Boðað verður til annars fundar í starfshópnum í framhaldi af fundi með Vegagerðinni.

Fundi slitið - kl. 13:45.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir