Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Ytri-Sólheimar 1A.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna með fyrirvara um að afmörkun verði lagfærð í samræmi við lóðarmörk og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir Saunahúsi við bílastæði í hrapi.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að útfæra nákvæma staðsetningu í samráði við umsækjanda og byggingarfulltrúa.
Ráðið mælist til þess að umsækjandi verði tímanlega búin að sækja um nauðsynlegar skipulagsbreytingar ef ætlunin er að starfsemin vari lengur en til árs.
Ráðið áréttar að yfirstandandi er endurskoðun á almennum reglum um stöðuleyfi í sveitarfélaginu og fyrirhugað að henni verði lokið á þessu ári.
Samþykkt: ÞHG, GÞG, MÖS, AHÓ, VG
Á móti: DGJ
SSÞ sat hjá