Skipulags- og umhverfisráð

44. fundur 21. ágúst 2026 kl. 13:00 - 14:56 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Magnús Örn Sigurjónsson Formaður
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
  • Þorgeir Guðnason Nefndarmaður
    Aðalmaður: Anna Huld Óskarsdóttir
  • Þorgerður H. Gísladóttir Nefndarmaður
  • Guðjón Þorsteinn Guðmundsson Nefndarmaður
  • Valdimar Gíslason Nefndarmaður
  • Davíð Geir Jónasson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.ASK BR - Holt 2

2605003

Lögð er fram til samþykktar lýsing á breytingu aðalskipulags Mýrdalshrepps fyrir Holt 2 (L228399).
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.ASK BR Giljur (VÞ30 og ÍB13)

2510015

Lögð er fram til samþykktar tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir verslunar- og þjónustusvæði VÞ30 Giljur.

Breytingin felur í sér um stækkun reits VÞ30 Giljur fyrir gisti- og ferðaþjónusta í eldri húsum á jörðinni og í smáhýsum, auk fjölgunar gistirúma á reitnum. Bætt er við nýjum reit fyrir íbúðarbyggð ÍB13 Giljur, þar sem gert er ráð fyrir heimildum til uppbyggingar fjögurra íbúðarhúsa.

Skipulagið var auglýst frá 15. júní til og með 27. júlí 2026.

Engar athugasemdir bárust, en umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands (VÍ), Vegagerðinni (Vg), Slökkviliði Mýrdalshrepps (SM) og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL).
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Giljur og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.

3.ASK BR - Ytri-Sólheimar 1a (VÞ14 og ÍB12)

2506006

Lögð er fram til samþykktar tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Ytri-Sólheima.

Breytingin felur í sér stækkun VÞ14 Ytri-Sólheima 1a í samræmi við afmörkun lóðar fyrir Ytri-Sólheima 1a og nýr reitur fyrir íbúðarbyggð ÍB12 Ytri-Sólheimar. Innan stækkaðs reits VÞ14 verður heimilt að vera með tjaldsvæði og gistirúmum fjölgað lítillega, eða úr 17 í 20.

Skipulagið var auglýst frá 26. júní til og með 7. ágúst 2026.

Engar athugasemdir bárust, en umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands (VÍ), Slökkviliði Mýrdalshrepps (SM) og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL).
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Ytri-Sólheima 1a og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.

4.ASK BR - Ránarbraut 3 (S4)

2602003

Lögð er fram tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Ránarbraut 3.

Breytingin felur í sér minnkun á samfélagsþjónustureit S4 úr 0,6 ha í 0,32 ha. Stofnaður verður nýr miðsvæðisreitur sem fær nafnið Ránarbraut 3 (M9). Innan miðsvæðisreit M9 er gisting ekki leyfileg en innan reitsins er gert ráð fyrir skrifstofum, léttri veitingarstarfsemi (kaffihús eða bakarí), dagvöruverslun og íbúðum. Þá er almennum skilmálum fyrir miðsvæði breytt, er varðar hámarkshæð bygginga á miðsvæðum.

Skipulagstillaga var kynnt frá 23. júní til og með 21. júlí 2026.

Engar athugasemdir bárust, en umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands (VÍ), Slökkviliði Mýrdalshrepps (SM) og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL).
Ráðið frestar afgreiðslu málsins og vísar því til frekari umfjöllunar á vinnufundi.

5.ASK BR Austurbyggð - Hamrahverfi (VÞ8, M8 og ÍB8)

2510002

Lögð er fram tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Hamrahverfi.

Breytingin felur í sér stækkun íbúðareits ÍB8 og stofnun nýs miðsvæðis M8, en við það minnkar reitur VÞ8. Almennum skilmálum fyrir miðsvæði er breytt, þannig að hámarkshæð bygginga hækkar úr 2 í 3 hæðir og hámarks mænishæð úr 7 í 10 metra.

Skipulagstillaga var kynnt frá 19. maí til og með 9. júní 2026.

Engar athugasemdir bárust, en umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands (VÍ), Vegagerðinni (Vg), Slökkviliði Mýrdalshrepps (SM) og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL).
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. sömu laga. Skipulagfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun skipulagstillöguna til yfirferðar áður en tillagan verður auglýst.
Samþykkt: ÞHG, VG, GÞG, MÖS, DGJ
Á móti: ÞG
SSÞ sat hjá

6.ASK BR - Suðurvíkurvegur 1 (M3)

2608007

Þorgerður Gísladóttir f.h. Veitingahúsið Suður-Vík ehf., óskar eftir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps í samræmi við meðfylgjandi umsókn.
ÞHG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ráðið heimilar fyrir sitt leyti að aðalskipulagsbreytingin verði unnin af sveitarfélaginu.

7.ASK BR - Austurvegur 17 (M5)

2608008

Margrét Reynisdóttir f.h. Súpufélagið ehf., óskar eftir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps í samræmi við meðfylgjandi umsókn.
ÞHG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ráðið telur að breytingin samræmist ekki byggðamynstri svæðisins og heimilar því ekki að skipulagi verði breytt í þá veru að íbúð verði breytt í skammtímaleigu.

8.DSK Höfðabrekka (Hótel Katla)

2406004

Lögð er fram að nýju tillaga að deiliskipulagi fyrir Höfðabrekka, vegna athugasemdar frá HMS við birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda, þar sem meira en ár er liðið frá því að auglýsingafresti lauk.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

9.DSK ÓBR Iðnaðarsvæði - Smiðjuvegur 12A

2604018

Lögð er fram tillaga um óverulega breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Vík.

Breytingin felur í sér tilfærslu á austurmörkum lóðarinnar Smiðjuvegar 12A.
ÞHG og VG véku af fundi við afgreiðslu málsins.
Breytingin telst það óveruleg að ekki er talin þörf á að grenndarkynna hana. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

10.DSK ÓBR Austurhlutinn í Vík - Smiðjuvegur 10

2604008

Lögð er fram tillaga um óverulega breytingu á deiliskipulagi Austurhlutans í Vík.

Breytingin felur í sér tilfærslu á austurmörkum lóðarinnar Smiðjuvegar 10.
ÞHG og VG véku af fundi við afgreiðslu málsins.
Breytingin telst það óveruleg að ekki er talin þörf á að grenndarkynna hana. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

11.DSK Giljur

2506004

Lögð fram til samþykktar tillaga að nýju deiliskipulag fyrir Giljur eftir að brugðist hefur verið við athugasemdum.

Skipulagið var auglýst frá 15. júní til og með 27. júlí 2026.

Engar athugasemdir bárust, en umsagnir bárust frá Vegagerðinni (Vg), Minjastofnun Íslands (MÍ), Slökkviliði Mýrdalshrepps (SM) og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL).
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.

12.DSK BR Hjörleifshöfði

2606015

Lögð fram umsókn um breytingu á uppdrætti deiliskipulagi fyrir áningarsvæði við Hjörleifshöfða.
Ráðið heimilar fyrir sitt leyti að deiliskipulag verði unnið fyrir svæðið.

13.DSK BR Hjörleifshöfði

2606015

Lögð er fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi við Hjörleifshöfða.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

14.DSK ÓBR Litli-Hvammur

2602010

Lögð fram til samþykktar tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Litla-Hvamm eftir að brugðist hefur verið við athugasemdum.

Skipulagið var grenndarkynnt frá 15. júlí til og með 11. ágúst 2026.

Athugasemdir bárust frá Steingerði Stellu Sigþórsdóttur, Kristrúnu Kiddý Sigþórsdóttur og Ástríður Sigþórsdóttur.
Skipulags- og umhverfisráð telur að brugðist hafi verið við framkomnum athugasemdum og samþykkir deiliskipulagsbreytinguna enda samræmist hún skilmálum aðalskipulags og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.

15.Brekkur 3 lóð - Stækkun lóðar

2608003

Lögð er fram merkjalýsing vegna stækkunar og breytingar á staðfangi á lóðinni Brekkur 3, lóð L186082.
Ráðið staðfestir fyrir sitt leyti afmörkun og nafnabreytingu lóðarinnar í samræmi við framlagða merkjalýsingu, þó með þeim fyrirvara að bæta þurfi kvöð um aðkomu á lóðinni inn í merkjalýsinguna.

16.Eyjarhólar 4 - stofnun lóðar

2608004

Lögð er fram merkjalýsing vegna stofnunar nýrrar lóðar Eyjarhóla 4 úr jörðinni Eyjarhólar L163009.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að lóðin verði stofnuð í samræmi við merkjalýsinguna.

17.Gatnamót við Hjörleifshöfða - framkvæmdaleyfi

2605004

Sannir Viking Park ehf. sækir um framkvæmdaleyfi vegna uppsetningar upplýsingaskilta og lagfæringar á núverandi plani við afleggjarann við Hjörleifshöfða, í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að framkvæmdaleyfi verði gefið út í samræmi við umsóknina.

18.Umsókn um stöðuleyfi - Sléttuvegur 10

2607001

Lava veitingar ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 2 stk. veitingavagna að Sléttuvegi 10 frá 1.7.2026-1.7.2027.
GÞG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ráðið frestar afgreiðslu málsins og vísar því til frekari umfjöllunar á vinnufundi þar sem reglur um stöðuleyfi verða teknar til endurskoðunar.
ÞG sat hjá við afgreiðslu málsins.

19.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Víkurbraut 26 - Flokkur 1

2607002

Sótt er um heimild til breytingar á innrarými í geymslu, ntt. mhl. 03, á lóðinni Víkurbraut 26 í samræmi við uppdrætti unna af ASK arkitektar, dags. 04.06.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, telur ráðið að falla megi frá grenndarkynningu, þar sem engir aðrir en sveitarfélagið sjálft og umsækjandi eru taldir eiga hagsmuna að gæta. Ráðið gerir því ekki athugasemdir við umsóknina.

20.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suðurvíkurvegur 5 - Flokkur 1

2608006

Óskað er eftir byggingarheimild fyrir viðbyggingu við gistihúsið Norður-Vík í samræmi við uppdrætti unna af VÞH hönnun, dags. 11.08.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
VG og ÞHG véku af fundi við afgreiðslu málsins.
Þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, telur ráðið að falla megi frá grenndarkynningu, þar sem engir aðrir en sveitarfélagið sjálft og umsækjandi eru taldir eiga hagsmuna að gæta. Ráðið gerir því ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

21.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13

2608003F

Fundi slitið - kl. 14:56.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir