Skipulags- og umhverfisráð

42. fundur 04. maí 2026 kl. 09:00 - 10:45 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Magnús Örn Sigurjónsson Formaður
  • Gunnar Sveinn Gíslason Nefndarmaður
    Aðalmaður: Þuríður Lilja Valtýsdóttir
  • Óðinn Gíslason Nefndarmaður
  • Ólafur Ögmundsson Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.ASK BR Austurbyggð - Hamrahverfi

2510002

Lögð er fram tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Hamrahverfi í samræmi við niðurstöður skipulagssamkeppni Austurbyggðar Víkur.

Skipulagsáætlanir taka mið af skuldbindingum sveitarfélagsins varðandi íbúðarbyggð og lóðaframboð til næstu ára og þeirra sjónarmiða sem fram koma í íbúakönnun.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að forkynna fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið.
AHÓ og SSÞ sátu hjá við afgreiðslu málsins.

2.DSK - Austurbyggð Víkur - Hamrahverfi

2109002

Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hamrahverfi.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið mælist til þess að útbúin verði gögn sem sýna skuggavarp af verslunar- og þjónustu og miðsvæði. Jafnframt verði skoðuð útfærsla á grenndarstöð fyrir íbúðargötur.
AHÓ og SSÞ sátu hjá við afgreiðslu málsins.

3.DSK BR Túnahverfi

2512004

Lögð er fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi fyrir Túnahverfi.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.DSK Kaldrananes

2409007

Lögð er fram til samþykktar tillaga að deiliskipulagi Kaldrananes eftir að brugðist hefur verið við athugasemdum HMS.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.

5.DSK Giljur

2506004

Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Giljur.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.DSK - Vesturhluta Víkurþorps

2009002

Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Vesturhluta Víkur.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið leggur áherslu á að svæði fyrir framan Brydebúð verði skipulagt þannig að nægur fjöldi bílastæða sé fyrir starfsemi Kötluseturs og veitingastaðar. Jafnframt verði ákvæði um gólfkóta tekin til frekari skoðunar m.t.t. til heildaryfirbragðs byggðar. Skipulagsfulltrúa er falið að kanna afstöðu íbúa á Sunnubraut til útfærslu á hljóðvörnum, hvort gerð verði mön eða girðing og trjágróður.

7.DSK ÓBR Iðnaðarsvæði

2604018

Lögð er fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins.
Ráðið gerir ekki athugasemd við breytinguna og mælist til að hún verði unnin samhliða óverulegri breytingu skipulags iðnaðarsvæðis sem þegar hefur verið samþykkt.

8.Saunahús - stöðuleyfi

2604016

Sótt er um stöðuleyfi í samræmi við framlögð gögn.
Ráðið telur að skoða þurfi fleiri staðsetningar og fá ítarlegri upplýsingar um fyrirkomulag m.t.t. tenginga við kerfi bæjarins o.þ.h. Málinu frestað til næsta fundar.

9.Lóðarbreytingar við Sunnubraut

2604017

Lögð fram tillaga að lóðarmörkum fyrir lóðanna Sunnubraut 24 til 32.
Skipulagsfulltrúi vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsinguna.

10.Austurvegur 11D - smáhýsi

2604019

Hilary Jane Tricker sækir um leyfi fyrir 5m² garðhús við Austurveg 11D í samræmi við framlögð gögn.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti umsóknina.

Fundi slitið - kl. 10:45.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir