2510015
Lögð er fram tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir verslunar- og þjónustusvæði VÞ30 Giljur. Breytingin felur í sér stækkun reits VÞ30 Giljur fyrir gisti- og ferðaþjónustu í eldri húsum á jörðinni og í smáhýsum, og fjölgun gistirúma á reitnum. Bætt er við nýjum reit fyrir íbúðarbyggð ÍB13 Giljur, þar sem gert er ráð fyrir heimild til uppbyggingar fjögurra íbúðarhúsa.
Skipulagstillaga var kynnt frá 2. mars til og með 23. mars 2026 og bárust engar athugasemdir en umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands(HSL), Slökkvilið Mýrdalshrepps(SM) og Vegagerðinni.
Samþykkt samhljóða.