Skipulags- og umhverfisráð

40. fundur 13. mars 2026 kl. 09:00 - 10:35 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Magnús Örn Sigurjónsson Formaður
  • Gunnar Sveinn Gíslason Nefndarmaður
    Aðalmaður: Þuríður Lilja Valtýsdóttir
  • Óðinn Gíslason Nefndarmaður
  • Ólafur Ögmundsson Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá
Lagt var til að mál 2504004 - Austurvegur 16 skilti, yrði bætt við dagskrá fundarins.
Samþykkt.

1.ASK ÓBR - Steig (VÞ26)

2308028

Lögð er fram tillaga um óverulega breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps sem felur í sér að byggingamagn aukið úr 600 m² í 1.500 m² fyrir reit VÞ26 Steig.
Málinu frestað til næsta fundar og skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum vegna misræmis á framfæri við málsaðila.

2.DSK Steig

2502003

Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Steig.
Málinu frestað til næsta fundar og skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum vegna misræmis á framfæri við málsaðila.

3.DSK BR Litli-Hvammur

2602010

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Litla-Hvamms.
Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að setja málið í grenndarkynningu skv. 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.DSK Undir Skeri (Austurhluta Víkur)

2205003

Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir svæðið Undir Skeri í þéttbýlinu Vík.
Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna, með þeirri breytingu að heimilt verði að staðsetja eitt smáhýsi fyrir hverja íbúð á lóðum við Strandveg sem háð verði samþykki allra íbúðareigenda á hverri lóð, og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið mælist jafnframt til þess að sveitarfélagið láti útbúa eignaskiptayfirlýsingu fyrir lóðina Strandveg 2-6 þar sem sveitarfélagið á þrjár íbúðir.

5.Smiðjuvegur 7 - Skilti

2603001

Penninn-Fasteignir ehf. sækir um leyfi til að setja upp skilti að Smiðjuvegi 7, í samræmi við framlögð gögn.
Ráðið samþykkir uppsetningu skilta í samræmi við innsend gögn fyrir utan LED skjá sem staðsettur er á norðurhlið hússins, í samræmi við skilmála aðalskipulags.

6.Reiðvegir í og við Vík

2602009

Lagt fram til umræðu.

7.Austurvegur 7 - Stöðuleyfi Crepis

2602012

Crepis ehf. sækir um framlengingu á stöðuleyfi fyrir matarvagn við Austurvegi 7.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti umsóknina.

8.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9

2602005F

  • 8.1 2505014 Víkurbraut 26 - umsangarbeiðni
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Samþykkt er að veita leyfi fyrir allt að 60 gesti í gistirými, en gerð er athugasemd við að veita leyfi fyrir allt að 80 gesti í veitingarými þar sem að ekki hefur verið sýnt fram á nægjanlega fjölda bílastæða við mannvirkið.
  • 8.2 2602005 Sólheimahjáleiga Gistihús- umsagnarbeiðni
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Ekki er gerð athugasemd við veitingu rekstrarleyfis að Sólheimahjáleigu fyrir 44 í gistingu og 60 í veitingarými.
  • 8.3 2602007 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skammidalur 2 - Flokkur 1
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • 8.4 2602011 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suður-Foss - Flokkur 1
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
    - Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs liggi fyrir sbr. gr. 15.2.2 í byggingarreglugerð 112/2012.
  • 8.5 2512009 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Austurvegur 20 - Flokkur 1
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
    Bókun fundar Ráðið mælist til þess að byggingarfulltrúi fylgi eftir bókunum ráðsins og sveitarfélagsins sem lúta að því að slökkvivatn verði tryggt fyrir húsið áður en framkvæmdir hefjast.
  • 8.6 2602006 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Klettsvegur 1 - Flokkur 3
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Afgreiðslu málsis er frestað þar sem að vinnu við deiliskipulag svæðisins er ekki lokið.

9.Austurvegur 16 - skilti

2504004

Eyþór Friðriksson f.h. Olís ehf. sækir um leyfi til að setja upp skilti að Austurvegur 16, í samræmi við framlögð gögn.
Ráðið fellst ekki á uppsetningu skilta skv. umsókninni þar sem þau eru of nálægt þjóðvegi. Ráðið vísar umsækjanda á fyrri umsókn sem samþykkt var í ágúst 2025 og þá skilmála sem tilgreindir eru í aðalskipulagi varðandi LED skjái.

Fundi slitið - kl. 10:35.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir