Öldungaráð

2. fundur 02. nóvember 2026 kl. 15:00 - 15:56 ráðhúsi Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Hjördís Rut Jónsdóttir Formaður
  • Sigurjóna Kristófersdóttir Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Helga Þorbergsdóttir Nefndarmaður
  • Anna Björnsdóttir Nefndarmaður
  • Birgir Hinriksson Nefndarmaður
  • Margrét Guðmundsdóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Málefni Hjallatúns

2609001

Framhaldsumræður frá síðasta fundi.

Formaður hefur átt samtal við hjúkrunarforstjóra sem tók vel í að sett verði á fót rekstrarnefnd fyrir hjúkrunarheimilið Hjallatún. Formaður kynnti hvernig fyrirkomulag þessarra mála er hjá öðrum hjúkrunarheimilum.
Öldungaráð leggur til við sveitarstjórna að komið verði á fót nefnd með svipuðu fyrirkomulagi og rekstrarnefnd Hjallatúns var áður fyrr, sem hafi það að markmiði að styðja við og efla starfsemi stofnunarinnar.
Hlutverk nefndarinnar verði meðal annars að vera vettvangur samráðs og samstarfs um málefni Hjallatúns, með sérstakri áherslu á velferð og aðbúnað íbúa, starfsaðstæður starfsfólks, viðhald og umhirðu fasteignarinnar og nærumhverfis hennar.
Nefndin verði jafnframt ráðgefandi vettvangur þar sem unnt verði að koma á framfæri ábendingum, hugmyndum og tillögum að úrbótum sem stuðla að jákvæðri þróun og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar.
Öldungaráð leggur áherslu á að nefndin starfi í góðu samstarfi við stjórnendur Hjallatúns og sveitarfélagið, með það að leiðarljósi að tryggja íbúum öruggt, hlýlegt og vistlegt umhverfi.
Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar Mýrdalshrepps að taka tillöguna til umfjöllunar og skoða möguleika á stofnun slíkrar nefndar, ásamt því að skilgreina hlutverk hennar, skipan og starfshætti.

2.Húsnæði fyrir félagsstarf

2610018

Rætt var um það hvort að hægt væri að útvega eldri borgurum húsnæði sem gæti hentað til námskeiðahalds á vegum félagsins. Rætt var um hvort að möguleiki væri á að núverandi húsnæði slökkvistöðvar gæti hentað í tengslum við byggingu nýrrar slökkvistöðvar.
Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar að kanna hvaða möguleikar gætu verið í boði til þess að koma upp aðstöðu sem nýst geti fyrir ýmiskonar námskeiðahald sem ekki hentar að hafa í félagsheimilinu Leikskálum.

3.Aðgengi að kirkjugarði

2610019

Rætt var um slæmt ástand að veginum upp að kirkjugarðinum í Vík, en skv. lögum um kirkjugarða skal sveitarstjórn tryggja þangað akfæran veg. Ráðið telur brýnt að ráðist verði í varanlegar úrbætur á veginum, enda skiptir gott aðgengi að kirkjugarðinum miklu máli fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar að láta meta ástand vegarins og gera áætlun um varanlegar úrbætur, með það að markmiði að vegurinn verði malbikaður og aðgengi að kirkjugarðinum bætt. Ráðið óskar eftir því að málið verði tekið til umfjöllunar við gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar sveitarfélagsins og að ráðinu verði kynnt niðurstaða þeirrar umfjöllunar.
Rætt var stuttlega um aðgengi að lyfjasölu og möguleikanum á því að komið væri á bakvakt til þess að geta útvegað nauðsynleg lyf utan opnunartíma. Sigurjóna mun kanna málið fyrir næsta fund.

Fundi slitið - kl. 15:56.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir