Umræður um fundadagatal og skipulagðan fund með sveitarstjórn.
Formaður lagði til og samþykkt var að fundað yrði fyrsta mánudag í nóvember, febrúar og maí.
2.Málefni Hjallatúns
2609001
Umræður um málefni Hjallatúns og rekstrarnefndar Hjallatúns.
Rætt var um rekstrarnefnd Hjallatúns sem lögð var niður árið 2022.
Jafnframt var rætt almennt um starfsemi Hjallatúns.
Öldungaráð leggur til við sveitarstjórn að skoðað verði að skipað verði að nýju í rekstrarnefnd Hjallatúns. Útbúa þyrfti erindisbréf fyrir nefndina og skilgreina hlutverk hennar vel svo að hún geti stutt sem best við starfsemi hjúkrunarheimilisins. Formanni er falið að skoða fyrirkomulag annarra hjúkrunarheimila og bera málið undir hjúkrunarforstjóra Hjallatúns.
Öldungaráðið hvetur sveitarfélagið jafnframt til þess leita leiða til að halda úti öflugra frístundastarfi fyrir heimilisfólk Hjallatúns og eldri borgara.