Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð

38. fundur 19. október 2026 kl. 09:00 - 10:38 ráðhúsi Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Þórey Richardt Úlfarsdóttir Formaður
  • Sigurjóna Kristófersdóttir
  • Kristrún Friðsemd Sveinsdóttir
  • Magnús Ragnarsson
  • Kristína Hajniková
  • Brynjar Ögmundsson
  • Þorgeir Guðnason
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
  • Elín Einarsdóttir
  • Katrín Hólm Árnadóttir
  • Kristján Þórðarson
  • Sabina Victoria Reinholdsdóttir Áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skýrsla skólastjóra

2209009

Lögð fram drög að starfsáætlun og skólanámsskrá 2026-2027 auk sjálfsmatsskýrslu 2025-2026.

Sabina Victoria Reinholdsdóttir sagði frá skiptinámi og skuggakennslu sem eru liðir í Erasmus áætlun skólans.
Ráðið þakkar skólastjóra fyrir yfirferðina og staðfestir fyrir sitt leyti starfsáætlun og skólanámsskrá 2026-2027.

2.Skýrsla leikskólastjóra

2209013

Lögð fram skýrsla leikskólastjóra og erindi frá starfsfólki.
Ráðið þakkar leikskólastjóra fyrir yfirferðina. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að auglýst verði starf aðstoðarleikskólastjóra/sérkennslustjóra við leikskólann.

3.Rekstur tónskóla Mýrdalshrepps

2608005

Ingibjörg Erlingsdóttir og Stefán Þorleifsson frá Tónsmiðju Suðurlands kynntu starf tónskólans.

42 nemendur eru skráðir í hljóðfæra- eða söngnámi auk þátttakenda í kórstarfi og námskeiðinu Syngjum saman.
Ráðið þakkar Stefáni og Ingibjörgu fyrir yfirferðina.

4.Starfsemi áhaldahúss

2610016

Kristján Þórðarson forstöðumaður áhaldahúss kom á fundinn. Rætt var um snjómokstur og fjallað um forgangsröðun vegna hreinsunar við stofnanir og á gönguleiðum. Jafnframt var rætt um viðhald skólahúsnæðis og félagsheimilisins.
Ráðið þakkar forstöðumanni fyrir yfirferðina.

Fundi slitið - kl. 10:38.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir