Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð

37. fundur 15. september 2026 kl. 09:00 - 11:05 ráðhúsi Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Þórey Richardt Úlfarsdóttir Formaður
  • Sigurjóna Kristófersdóttir
  • Björn Þór Ólafsson
    Aðalmaður: Kristrún Friðsemd Sveinsdóttir
  • Magnús Ragnarsson
  • Kristína Hajniková
  • Brynjar Ögmundsson
  • Þórdís Erla Ólafsdóttir Dýrfjörð Nefndarmaður
    Aðalmaður: Þorgeir Guðnason
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
  • Katrín Hólm Árnadóttir
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skýrsla leikskólastjóra

2209013

Katrín Hólm Árnadóttir leikskólastjóri flutti skýrslu um starf leikskólans. Rætt var um stöðu fjöltyngdra barna og hvað þurfi að huga að til að tryggja þeim góðan undirbúning fyrir frekari skólagöngu. Sérstaklega þarf að líta til þess hvernig sé hægt að nálgast foreldra af erlendu bergi brotnir og auka færni þeirra til að vera virkir þátttakendur í námi barna sinna.

Lögð var fram skýrsla um innramat 2025-2026 og umbótaáætlun 2026-2027.

Leikskólastjóri upplýsti jafnframt um að verið væri að útbúa ferilmöppur fyrir nemendur.
Ráðið þakkar leikskólastjóra fyrir yfirferðina. Ráðið leggur jafnframt til við sveitarstjórn að hugað verði að því að áætla fjármagn á fjárhagsáætlun næsta árs í verkefni til þess að tryggja fjöltyngdum börnum og fjölskyldum þeirra nauðsynlegan stuðning.

2.Rekstur tónskóla Mýrdalshrepps

2608005

Ingibjörg Erlingsdóttir framkvæmdastjóri Tónsmiðju Suðurlands kynnti starf tónskólans. Enn er opið fyrir skráningar en þær nálgast nú þegar að fylla í sömu stöðugildi og á fyrra skólaári og ráðinn hefur verið klassískur söngkennari. Stefnt er að því að tónskólinn taki þátt í menningarviðburðum og að skipulagðir verði aðventutónleikar.

3.Voices of Vík

2609003

Ann Peters kom á fundinn og kynnti verkefnið Voices of Vík sem hlaut nýverið styrk út Hörpusjóð SASS.

Markmið verkefnisins er að útbúa vettvang fyrir fólk til þess að hittast, deila menningararfi og æfa tungumálafærni. Stefnt er að því að verkefnið nái til 650 manns af meira en 15 þjóðernum og að um 20 sjálfboðaliðar taki þátt.
Ráðið þakkar Ann fyrir yfirferðina. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að útbúinn verði styrktarsamningur enda styður verkefnið vel við markmið inngildingarstefnu sveitarfélagsins.

4.Umsókn um FIFA Arena knattspyrnuvöll

2609002

Lögð fram drög að umsókn í FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að sótt verði um í verkefnið í samræmi við framlögð gögn.

5.Leiksvæði í Vík

2410006

Tillaga um hönnun leiksvæða í Vík.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna og leggur til að Þórey Richardt Úlfarsdóttir, Björn Þór Ólafsson og Brynjar Ögmundsson skipi hönnunarteymi. Ráðið mælist til þess að verkefnisstjóri hafi jafnframt samráð við fagráð sveitarfélagsins.

6.Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar OZ

2609008

Umræður um stöðu og fyrirkomulag félagsmiðstöðvarinnar 2026-2027. Sveitarstjóri upplýsti um stöðuna og kynnti drög að dagskrá fyrir félagsmiðstöðina fram að áramótum.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að leitað verði leiða til að bjóða upp á félagsmiðstöð eða frístundastarf fyrir aldurshópinn 10-12 ára.
Jafnframt leggur ráðið áherslu á að framtíðarfyrirkomulag frístundastarfs verði skoðað í því augnamiði að ráða í stöður til þess að halda utan um dægradvöl, félagsmiðstöð og aðra frístund.

Fundi slitið - kl. 11:05.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir