Lagt var til og samþykkt samhljóða að Kristina Hajniková verði varaformaður ráðsins.
1.Skýrsla skólastjóra
2209009
Elín Einarsdóttir skólastjóri Víkurskóla kom á fundinn og flutti skýrslu um starfið framundan og kynnti niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
Ráðið þakkar skólastjóra fyrir yfirferðina.
2.Skýrsla leikskólastjóra
2209013
Katrín Hólm Árnadóttir leikskólastjóri kom á fundinn og flutti skýrslu um skólastarfið.
Ráðið þakkar leikskólastjóra fyrir yfirferðina. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2026 fyrir kaupum á nýjum kastala á leikskólalóð og rólu á ungbarnasvæði. Ráðið mælist jafnframt til þess að áhaldahús í samstarfi við verktaka vinni úrbótaáætlun vegna þeirra atriða sem ganga þarf frá við húsnæði skólans.
3.Kynning frá forstöðukonu Kötluseturs
2209031
Ailsa Guild forstöðukona kom á fundinn og kynnti starfsemi Kötluseturs og ræddi undirbúning Regnbogahátíðarinnar sem haldin verður aðra helgina í október.
Ráðið þakkar Ailsu fyrir yfirferðina.
4.Rekstur tónskóla Mýrdalshrepps
2608005
Lögð fram drög að þjónustusamning við Tónsmiðju Suðurlands og drög að skóladagatali 2026-2027.
Ráðið staðfestir fyrir sitt leyti framlögð drög að samningi og skóladagatal 2026-2027.