Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð

33. fundur 12. mars 2026 kl. 09:00 - 10:50 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Þorgerður H. Gísladóttir Formaður
  • Björn Þór Ólafsson Nefndarmaður
  • Finnur Bárðarson Nefndarmaður
  • Kristína Hajniková Nefndarmaður
  • Þórey Richardt Úlfarsdóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
  • Elín Einarsdóttir
  • Katrín Hólm Árnadóttir
  • Þuríður Lilja Valtýsdóttir Áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skýrsla leikskólastjóra

2209013

Katrín Hólm Árnadóttir starfandi leikskólastjóri mætti á fundinn og flutti skýrslu um starf leikskólans. Lögð voru fram drög að skóladagatali 2026-2027 og skólanámsskrá Mánalands. Jafnframt voru lagðar fram til kynningar niðurstöður Skólapúlsins.
Ráðið þakkar Katrínu fyrir yfirferðina. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti framlagt skóladagatal 2026-2027, með fyrirvara um staðfestingu foreldraráðs, og skólanámsskrá Mánalands.

2.Skýrsla skólastjóra

2209009

Elín Einarsdóttir skólastjóri Víkurskóla mætti á fundinn og flutti skýrslu um skólastarfið. Lögð voru fram drög að skóladagatali 2026-2027 auk yfirlits um skerta skóladaga. Kynntar voru hugmyndir að innréttingu á bókasafni skólans.
Ráðið þakkar Elínu fyrir yfirferðina. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti skóladagatal Víkurskóla 2026-2027 með fyrirvara um staðfestingu skólaráðs og starfsmannafundar. Ráðið leggur jafnframt til við sveitarstjórn að skoðuð verði kaup á innréttingu fyrir bókasafn Víkurskóla sem geti nýst til framtíðar í tengslum við framtíðarþróun skólahúsnæðisins og haft verði samráð við hönnuði.

3.Samstarfssamningur við USVS

2504006

Lögð fram drög að samstarfssamning auk umsagna.

Jóhann Bragi Elínarson formaður USVS mætti á fundinn og kynnti umsagnir og uppfærð drög að samningi.
Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ráðið staðfestir fyrir sitt leyti samninginn.

Fundi slitið - kl. 10:50.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir