Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð

32. fundur 12. febrúar 2026 kl. 09:00 - 11:30 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Þorgerður H. Gísladóttir Formaður
  • Elísabet Ásta Magnúsdóttir Nefndarmaður
    Aðalmaður: Björn Þór Ólafsson
  • Finnur Bárðarson Nefndarmaður
  • Kristína Hajniková Nefndarmaður
  • Jóhann Fannar Guðjónsson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
  • Elín Einarsdóttir
  • Katrín Hólm Árnadóttir
  • Þuríður Lilja Valtýsdóttir Áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skýrsla leikskólastjóra

2209013

Katrín Hólm Árnadóttir starfandi leikskólastjóri kom á fundinn og flutti skýrslu úr skólastarfinu. Lögð var fram skólanámskrá og drög að leikskóladagatali 2026-2027. Lagður var fram til kynningar upplýsingabæklingur um umferðaröryggi fyrir foreldra barna á leikskólanum.

Jafnframt var lögð fram beiðni um auka starfsdag á leikskólanum þann 9. mars 2026 vegna samstarfs við MEMM um málörvun barna á leikskólanum.
Ráðið þakkar leiksskólastjóra fyrir yfirferðina.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti viðbótarstarfsdag vegna samstarfsverkefnis með MEMM. Ráðið frestar afgreiðslu skólanámskrár og skóladagatals þar til skóladagatal fyrir Víkurskóla liggur fyrir.

2.Skýrsla skólastjóra

2209009

Elín Einarsdóttir skólastjóri mætti á fundinn og flutti skýrslu úr skólastarfinu. Jafnframt var lögð fram ályktun af starfsmannafundi vegna bílastæða. Þuríður Lilja Valtýsdóttir kennari við Víkurskóla flutti jafnframt kynningu um niðurstöður skólaþings Víkurskóla.
Ráðið þakkar skólastjóra og Þuríði fyrir yfirferðina. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti viðbótarstarfsdag fyrir skólaárið 2026-2027 vegna náms- og kynnisferðar starfsfólks. Ráðið felur skólastjóra í samráði við forstöðumanns áhaldahúss að ráðast í úrbætur á skólalóð og við bílastæði Víkurskóla.

3.Samstarfssamningur við USVS

2504006

Lögð fram drög að samstarfsamning. Jóhann Bragi Elínarson formaður USVS mætti á fundinn og kynnti drög að samstarfssamningi og starf USVS.
Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Lagt er til að óskað verði eftir umsögn ÍSÍ og UMFÍ auk aðildarfélaga USVS um samninginn áður en hann verður lagður fyrir næsta fund ráðsins. Jafnframt leggur ráðið til að gildistími samningsins og uppsagnarákvæði verði endurskoðuð, form samningsins endurskoðað til einföldunar, auk annarra útfærsluatriða í samræmi við umræður fundarins. Formanni ráðsins falið að fylgja málinu eftir.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir