Fjallskilanefnd

9. fundur 10. ágúst 2026 kl. 20:00 - 21:26 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Karl Pálmason Nefndarmaður
  • Ragnhildur Jónsdóttir Nefndarmaður
  • Jóhanna Jónsdóttir Nefndarmaður
  • Árni Gunnarsson Formaður
  • Kristín Ólafsdóttir Nefndarmaður
Fundargerð ritaði: Ragnhildur Jónsdóttir
Dagskrá

1.Fjallskil 2026

2608001

Tillaga lögð fram að taka 3. safn út úr fjallskilum ? (samþykkt samhljóða).
-
Farið í 1., 2. safn og svo hugmynd um mögulegt dróna safn í samstarfi við Björgunarsveit Víkverja ef þau eru til í slíkt.
-
Drónamaður þyrfti að fá greitt fyrir sína vinnu eins og smali í eftirleit.

Hafdís tekin úr fjallskilum Höfðabrekku- og Kerlingardalsafrétt.

Hafdís tekin úr fjallskilum Höfðabrekku- og Kerlingadalsheiði og einum manni bætt við Skammadal þar í 1. safn.

Dalaheiði óbreytt.

Í Heiðarheiði og Gatnahraun er Hafdís tekin úr fjallskilum og einum manni bætt við Árna frá því í fyrra.

Einum manni bætt við Ólaf Þorsteinn og einum manni bætt við Jónas í 2. Safn í Heiðargili og Heiðardal.

Fjallskil í Koltungum og Svínatungum haldast óbreytt frá fyrra ári. Í fyrirstöðu þar er Hafdís tekin úr skilum og einum manni bætt við Giljur.
Fagradals- og Arnarstakksheiði fjallskil haldast óbreytt.

Háfells og Höfðabrekkuháls fjallskil, eini maður Jónasar tekin út úr fjallskilum. Einu manni bætt við Skammadal í staðinn.

Í Háfell fyrirstöðu er Hafdís tekin út úr fjallskilum og einum manni bætt við Kerlingardal.

Óbreytt fjallskil í Búrfelli og Dalahögum.

Rætt um úrlausn smölunnar í Stórhöfða, Holtsgili og í Holts-, Grófar- og Keldudalsheiði.
-
Leysa með dróna skoðun þar sem engu fé er sleppt þar upp lengur. Sendur drónamaður ásamt staðkunnugum manni.
-
Ekki víst að allt sjáist úr lofti inn í Holtsgili svo lagt á einn mann þar í lok september.

Í Stórhöfða var Atli tekin úr fjallskilum og aðeins 1 maður á Guðjón til að fylgja drónamanni.

Holtsgil ? óbreytt

Holts, Grófar- og Keldudalsheiði ? aðeins einn maður lagður á Guðjón.

Fellsheiði tekin út úr fjallskilum.
-
Ef þarf að smala þar verða auka tímar sendir út á það.

Heimaheiði og Eystri Sólheimaheiði óbreytt fjallskil einnig á Ystheiði og Lakalandi.

Þórólfur sagði af sér sem fjallkóngur í Kjósunum. Tillaga um Jónas Erlendsson sem fjallkóng þar. Tillaga samþykkt.

Tillaga lögð fram að breyta smölum í Kjósunum. Að prófa að reka fé austur úr Kjósunum og niður að Fagradal. Tillaga samþykkt til prufunar þetta árið og sjá hvernig gengur.

Lagt var á einn mann frá Görðum í Kjósirnar, sá tekin út þar sem ekkert fé er þar lengur.
Þórólfur tekin út úr fjallskilum í Kjósunum, fé hans fer ekki lengur þangað.
Einum manni bætt við Jónas og 1 maður á Árna Gunn.

Dagsetningar smölunar 2026

Fagradalsheiði - 29. ágúst 2026
Heiðargil og Heiðardalur ? 3. september 2026
Dalaheiði, Búrfell og Dalahagar 5. september 2026
Heiðarheiði ? 5. september 2026
Höfðabrekku- og Kerlingardalsafréttur 11. september 2026
Höfðabrekku og Kerlingardalsheiði 12. september 2026
Háfell og Höfðabrekkuháls ? 16. september 2026
Koltungur og Svínatungur ? 19. september 2026
Eystri Sólheimaheiði / Heimaheiði ? 13. september 2026
Ystheiði og Lakaland ? 12. september 2026
Stórhöfði ? 25. september 2026
Skálfandi, Lambhagi, Holts- og Grófarheiði ? 25. september 2026
Holtsgil ? 25. september 2026.

Breyting álagningar

Álagningu breytt í Heiðargili og Heiðardal. Skipt í tvennt á álagningarseðli. Heiðargils smalar sér álagning og Heiðardals smalar sér.
3 menn í 1. safn í Heiðargil ? hærra verð (26.335 kr./mann, verð síðan 2025)
5 menn í 1. safn, 2 menn í 2. safn í Heiðardal ? lægra verð (14.394 kr., verð síðan 2025)

2.Önnur mál

2308025

Heiðarvegir
Karl Pálmason ætlar að athuga með Höfðabrekkuafréttisveginn.
Gunnar Ólafsson beðin um að athuga með veginn inn úr Heiðarheiði.

Fjallvegasjóður
Fjallskilanefnd vill koma með ábendingu til hreppsnefndar varðandi fjallvegasjóð. Að sækja um í hann til Vegagerðarinnar til að viðhalda fjallvegunum í sveitarfélaginu.

Girðingar umhverfis Vík
Fjallskilanefnd vill ítreka við hreppsnefnd að gera þarf við girðingar kringum þorpið áður en fé fer út á vorin. Vegna þess að girðingarviðhaldi var ekki sinnt í vor er töluvert af fé innan girðingar.
Fjallskilanefnd fer því fram á að sveitarfélagið greiði eftirleitartíma fyrir smölun á þessu fé.

Fundi slitið - kl. 21:26.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir