Enskumælandi ráð - English Speaking Council

34. fundur 18. mars 2026 kl. 09:00 - 10:30 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Tomasz Chocholowicz Formaður
  • Hamsa Arnedo Moreno
  • Delfin Bagsic Dimailig
  • Deirdre Ana Stack Marques
  • Kristína Hajniková
Starfsmenn
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri / Mayor
Dagskrá

1.Umræður með leikskólastjóra - Discussions with the pre-school director

2209013

Katrín Hólm Árnadóttir starfandi leikskólastjóri mætti á fundinn og ræddi hugmyndir um aukna upplýsingagjöf um skólastarf til foreldra og verðandi foreldra sem tæki mið af fjölmenningarlegum bakgrunni barna og foreldra. Skipulagður yrði fundur eða námskeið með foreldrum barna í leik- og grunnskóla til að efla þekkingu og þátttöku foreldra í skólastarfinu. - Katrín Hólm Árnadóttir, acting pre-school principal, attended the meeting and discussed ideas for increased information provision about school activities to parents and prospective parents that would take into account the multicultural background of children and parents. A meeting or course would be organized with parents of children in preschool and elementary schools to enhance parental knowledge and participation in school activities.
Ráðið þakkar Katrínu fyrir umræðuna og tekur undir mikilvægi þess að auka þátttöku foreldra í skólastarfi og lýsir sig reiðubúið til að aðstoða eins og kostur er. - The council thanks Katrín for the discussions and acknowledges the importance of increasing parental involvement in school activities and expresses its readiness to assist in any way possible.

2.Skýrsla sveitarstjóra - Mayor's report

2209026

3.Lýðræðisþátttökuverkefni - Immigrant Democratic Engagement Project

2509003

Samantekt af fundi með verkefnisstjóra. - Summary from a meeting with the project manager.

4.Upplýsingafundur vegna kosninga - Election information meeting

2603004

Ræddar voru hugmyndir um útfærslu og dagsetningar fyrir upplýsingafundi um sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 16. maí nk. - Ideas were discussed about the implementation and dates for information meetings about the local elections that will take place on May 16th.
Ráðið samþykkir að bjóða upp á fundi 8. apríl nk. í Leikskálum, annar um morguninn og hinn um kvöldið til þess að sem flestir hafi tök á að mæta. - The council agrees to hold meetings on April 8th in Leikskálar, one in the morning and the other in the evening, so that as many people as possible can attend.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir