1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Smiðjuvegur 12A - Flokkur 1
2512001
Óskað er eftir breytingum á innra rými í matseiningum 0101, 0104 og 0105 í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti unna af Verkfræðistofunni EFLA, dags. 5.3.2026.
Samþykkt með fyrirvara um að uppdrætti sé breytt þannig að lýsing þeirra rýma sem verið er að breyta sé í samræmi við notkun þeirra, og að brunalýsingu sé bætt við á uppdráttinn.
2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hjörleifshöfði - Flokkur 1
2608002
Sótt er um heimild til að byggja almenningssalerni við áningasstaðinn Hjörleifshöfða í samræmi við uppdrætti unna af Verkís, dags. 06.07.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem að það er enn í skipulagsferli.
3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suðurvíkurvegur 5 - Flokkur 1
2608006
Óskað er eftir byggingarheimild fyrir viðbyggingu við gistihúsið Norður-Vík í samræmi við uppdrætti unna af VÞH hönnun, dags. 11.08.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins var frestað á 13. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið fjallaði um málið á 44. fundi sínum og gerði ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins á 695. fundi sínum.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Króktún 11 - Flokkur 2
2610006
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 293,9 m2 einbýlishúsi á lóðinni Króktún 11 í samræmi við uppdrætti unna af JeEs arkitektum, dags. 17.09.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Afgreiðslu málsins var hafnað á 14. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa vegna skipulagstengdra athugasemda. Málið var tekið fyrir á 46. fundi skipulags- og umhverfisráðs sem gerði ekki athugasemdir við málið á grunni uppfærðra aðaluppdrátta dags. 16.10.2026, að fengnu samþykki nágranna. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins á 697. fundi sínum. Grenndarkynningu er lokið og komu ekki fram athugasemdir við málið.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Austurvegur 17 - Flokkur 1
2610008
Sótt er um byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á Austurvegu 17 í samræmi við uppdrætti unna af EFLA verkfræðistofa, dags. 23.09.2026. Framkvæmdin er í umgangdsflokki 1.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Mánabraut - Flokkur 1
2610011
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 99,8 m2 skýli fyrir íþróttaáhöld við íþróttavöllinn í Vík í samræmi við uppdrætti unna af VÍH verkfræðistofu, dags. 06.10.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins var frestað í 14. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið tók málið fyrir á 46. fundi sínum og gerði ekki athugasemdir við staðsetningu mannvirkisins. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins á 697. fundi sínum og veitti heimild til fráviks frá grenndarkynningu á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.