Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

14. fundur 08. október 2026 kl. 13:00 - 14:40 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Guðmundur Úlfar Gíslason Byggingarfulltrúi
  • Ívar Páll Bjartmarsson Nefndarmaður
Fundargerð ritaði: Guðmundur Úlfar Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Víkurbraut 5 - Flokkur 1

2511004

Sótt er um byggingarleyfi fyrir breytingum innan- og utanhúss að Víkurbraut 5 ásamt breytingum á sorpsvæði. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins var frestað á 7. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið fjallaði um málið á 37. fundi sínum og samþykkti að málið yrði grenndarkynnt. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins á 687. fundi sínum.
Málið var kynnt næstu nágrönnum með grenndarkynningu og bárust engar athugasemdir innan gefins athugasemdarfrests.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Víkurbraut 26 - Flokkur 1

2607002

Sótt er um heimild til breytingar á innrarými í geymslu, ntt. mhl. 03, á lóðinni Víkurbraut 26 í samræmi við uppdrætti unna af ASK arkitektar, dags. 04.06.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins var frestað á 12. afgreiðslufundi og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið tók málið fyrir á 44. fundi sínum og gerði ekki athugasemdir við málið. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins á 695. fundi sínum.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hjörleifshöfði - Flokkur 1

2608002

Sótt er um heimild til að byggja almenningssalerni við áningasstaðinn Hjörleifshöfða í samræmi við uppdrætti unna af Verkís, dags. 06.07.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað.

4.Mánabraut 32b - Garðhús

2609006

Óskað er eftir heimild til þess að smíða 15m2 garðskúr að Mánabraut 32b í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Þar sem að skúrinn er nær lóðarmörkum en 3m og ekki liggur fyrir samþykki nágranna, þá er ekki hægt að veita heimild fyrir framkvæmdinni.
Hafnað.

5.Umsókn um stöðuleyfi - Smiðjuvegur 21

2609010

Sótt er um stöðuleyfi, frá 1.10.2026 - 31.9.2027, fyrir tveimur 20 feta gámum á lóðinni Smiðjuvegur 21 í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Samþykkt að veita stöðuleyfi frá 1.10.2026 - 30.9.2027.

6.Icelandic Mountain Guides - starfsleyfi

2609011

Óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa vegna umsóknar um starfsleyfi á Ytri-Sólheimum 1a. Um er að ræða endurnýjun á starfsleyfi fyrir Ferðaskrifstofu Icelandia ehf.
Ekki er gerð athugsemd við veitingu starfsleyfis vegna reksturs gestamóttöku og verkstæðis en athugasemd er gerð við veitingu starfsleyfis fyrir starfsmannabúðum þar sem að þær hafa ekki fengið samþykki byggingaryfirvalda í Mýrdalsahreppi.

7.Penninn Eymundsson

2609013

Óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa vegna umsóknar um nýtt starfsleyfi fyrir Pennan-Eymundsson á Smiðjuvegi 7.
Ekki er gerð athugsemd við veitingu starfsleyfis með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu eftir úttekt byggingarfulltrúa.

8.Umsókn um leyfi fyrir ljósaskilti - Smiðjuvegur 7

2609014

Sótt er um leyfi til þess að setja upp ljósaskilti á Smiðjuveg 7 í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Ekki er gerð athugasemd við uppsetningu á ljósaskilti með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.

9.Golfvöllurinn Vík - umsókn um stöðuleyfi

2610003

Sótt er um stöðuleyfi fyrir söluvagn á lóðinni Mósastallur frá 2.10.2026 - 1.10.2027 í samræmi við meðfylgjandi umsókn.
Samþykkt að veita stöðuleyfi frá 2.10.2026 - 1.10.2027.

10.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Mósastallur - Flokkur 2

2610005

Sótt er um byggingarheimild fyrir golfskála að stærð 73,1 m2 í samræmi við uppdrætti unna af BIRKO, dags. 26.08.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

11.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Króktún 11 - Flokkur 2

2610006

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 293,9 m2 einbýlishúsi á lóðinni Króktún 11 í samræmi við uppdrætti unna af JeEs arkitektum, dags. 17.09.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Málinu er hafnað á þeim forsendum að uppdrættir eru ekki í samræmi við skilmála gildandi deiliskipulags.

12.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Kerlingardalur 4 - Flokkur 2

2610007

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 4 gistihúsum í Kerlingardal 4, hvert um sig að stærð 32,6 m2, í samræmi við uppdrætti unna af GM hönnun ehf. dags. 28.09.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

13.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Austurvegur 17 - Flokkur 1

2610008

Sótt er um byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á Austurvegu 17 í samræmi við uppdrætti unna af EFLA verkfræðistofa, dags. 23.09.2026. Framkvæmdin er í umgangdsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem að gögn eru ófullnægjandi.
Skipulagsfulltrúi víkur af fundi við afgreiðslu næstu tveggja mála.

14.Klettsvegur 14 - Stöðuleyfi fyrir vinnubúðir

2610009

Sótt er um framlengingu til eins árs á stöðuleyfi fyrir vinnubúðir tengdar framkvæmdum við Sléttuveg 5A og Klettsveg 1.
Samþykkt að framlengja stöðuleyfi um eitt ár eða frá 15.03.2026 - 14.03.2027.

15.Klettsvegur 1 - Stöðuleyfi fyrir verkfærageymsla

2610010

Sótt er um stöðuleyfi fyrir verkfærageymslu við Klettsveg 1 frá 1.9.2026 - 1.9 2027.
Samþykkt að veita stöðuleyfi frá 1.9.2026 - 31.8.2027.
Skipulagsfulltrúi kemur aftur inn á fund.

16.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Mánabraut - Flokkur 1

2610011

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 99,8 m2 skýli fyrir íþróttaáhöld við íþróttavöllinn í Vík í samræmi við uppdrætti unna af VÍH verkfræðistofu, dags. 06.10.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umföllunar í skipulags- og umhverfisráði.

Fundi slitið - kl. 14:40.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir