Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

12. fundur 03. júlí 2026 kl. 10:00 - 10:30 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Úlfar Gíslason Byggingarfulltrúi
  • Ívar Páll Bjartmarsson Nefndarmaður
Fundargerð ritaði: Guðmundur Úlfar Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Klettsvegur 1 - Flokkur 3

2602006

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 3200 m2 viðbyggingu við núverandi hótelbyggingu að Klettsvegi 1 í samræmi við uppdrætti unna af A2F arkitektar, dags. 11.02.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Afgreiðslu málsins var frestað á 10. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa vegna athugsemda við brunavarnir mannvirkisins. Búið er að bregðast við fyrrgreindum athugasemdum.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Mýrarbraut 3 - Flokkur 2

2606006

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 253,1 m2 íbúðarhúsi á lóðinni Mýrarbraut 3 í samræmi við uppdrætti unna af VÞH hönnun, dags. 10.05.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Afgreiðslu málsins var frestað á 11. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 43. fundi sínum og gerði ekki athugasemdir við útlit hússins mv. fyrirliggjandi hönnunargögn.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Umsókn um stöðuleyfi - Víkurbraut 21A

2606010

Óðinn Gíslason sækir um stöðuleyfi fyrir 4 stk. sumarhúsum sem smíðuð verða innandyra við Víkurbraut 21A og verða flutt burt að hausti. Sumarhúsin verða staðsett á lóð sveitarfélagsins nær Víkurbraut 21A, í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 43. fundi sínum og heimilar fyrir sitt leyti að stöðuleyfi verði veitt en mælist til þess að framkvæmdaaðili taki tillit til íbúa við nærliggjandi götu og að ónæði hljótist ekki af framkvæmdinni. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins á 694. fundi sínum.
Samþykkt er að veita stöðuleyfi frá 15. júní 2026 - 30. september 2026.

4.Halldórskaffi (Víkurbraut 28) - umsagnarbeiðni um starfsleyfi

2606012

Óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa vegna nýs starfsleyfis fyrir rekstur veitingastaðar/kaffihúss í Brydebúð, Víkurbraut 28, F2188847.
Ekki er gerð athugasemd við veitingu starfsleyfis með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu eftir úttekt byggingarfulltrúa.

5.Apótekarinn Vík (Smiðjuvegur 7) - umsagnarbeiðni um starfsleyfi

2606019

Óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa vegna nýs starfsleyfis fyrir rekstur apóteks Apótekarans á Smiðjuvegi 7, F2506707.
Ekki er gerð athugasemd við veitingu starfsleyfis með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu eftir úttekt byggingarfulltrúa.

6.Umsókn um stöðuleyfi - Sléttuvegur 10

2607001

Lava veitingar ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 2 stk. veitingavagna að Sléttuvegi 10 frá 1.7.2026-1.7.2027.
Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.

7.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Víkurbraut 26 - Flokkur 1

2607002

Sótt er um heimild til breytingar á innrarými í geymslu, ntt. mhl. 03, á lóðinni Víkurbraut 26 í samræmi við uppdrætti unna af ASK arkitektar, dags. 04.06.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.

8.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Pétursey 1 - Flokkur 1

2607003

Sótt er um byggingarleyfi fyrir hesthúsi og geymslu í Pétursey 1 í samræmi við uppdrætti unna af Togson ehf., dags. 05.12.2025. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir