Sótt er um byggingarleyfi fyrir parhúsi á einni hæð að Brekkum í samræmi við uppdrætti unna af TAG teiknistofa ehf, dags. 12.12.2023. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Byggingarleyfi samþykkt.
2.Kaldrananes - Umsókn um byggingarleyfi
2404003
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir tveimur 52,1 m2 íbúðarhúsum í samræmi við uppdrætti unna af VÞH hönnun, dags. 02.01.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Afgreiðslu málsins er frestað vegna þess að skipulag svæðisins er enn í vinnslu.
3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Klettsvegur 1 - Flokkur 3
2602006
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 3200 m2 viðbyggingu við núverandi hótelbyggingu að Klettsvegi 1 í samræmi við uppdrætti unna af A2F arkitektar, dags. 11.02.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Afgreiðslu málsins var frestað á 9. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa vegna vinnu við deiliskipulag svæðisins. Þeirri vinnu er nú lokið og búið að auglýsa deiliskipulagið í B-deild Stjórnartíðinda.
Ívar Páll Bjartmarsson leggur fram bókun við afgreiðslu þessa liðs, sem er sett fram í umsögn, dagsettri 20.04.2026. Í niðurlagi umsagnar er þess óskað að ekki verði tekin jákvæð ákvörðun um samþykkt fyrr en framangreindum athugasemdum, sem snerta brunavarnir mannvirkisins, verði sinnt með fullnægjandi hætti.
Byggingarfulltrúi leggur til að haldinn verði fundur með hönnuðum mannvirkis, fulltrúa slökkviliðs Mýrdalshrepps og byggingarfulltrúa þar sem að fjallað verður um brunavarnir mannvirkisins eins fljótt og unnt er.
Afgreiðslu málsins er frestað.
4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Austurvegur 16 - Flokkur 2
2604002
Sótt er um breytingar á núverandi mannvirki að Austurvegi 20 í samræmi við uppdrætti unna af dap, dags. 23.03.2026. Um er að ræða framkvæmd í umfangsflokki 1.
Í inngangi málsins er sagt að um sé að ræða Austurveg 20. Það er rangt en um er að ræða framkvæmd á Austurvegi 16.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Smiðjuvegur 20A - Flokkur 1
2604003
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 160 m2 iðnaðarhúsnæði að Austurvegi 20A í samræmi við uppdrætti unna af LímtréVírnet, dags. 24.03.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.
6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Smiðjuvegur 12C - Flokkur 1
2604004
Sótt er um byggingarleyfi fyrir saltgeymslu við Smiðjuveg 12C í samræmi við uppdrætti unna af Gláma-Kím, dags. 30.03.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.
7.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Smiðjuvegur 18A - Flokkur 2
2604005
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 299,1 m2 iðnaðarhúsnæði að Smiðjuvegi 18A í samræmi við uppdrætti unna af VÞH hönnun, dags. 21.6.2025. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.
8.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Kerlingardalur 4 - Flokkur 1
2604006
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 65,5 m2 gistihúsi á lóðinni Kerlingardalur 4, í samræmi við uppdrætti unna af GM hönnun ehf, dags. 23.05.2025. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
9.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Loðmundarstaðir - Flokkur 1
2604011
Sótt er um leyfi til þess að byggja við núverandi einbýlishús í samræmi við uppdrætti unna af Gláma-Kím, dags. 7.4.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.