Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

9. fundur 27. febrúar 2026 kl. 11:00 - 12:00 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Guðmundur Úlfar Gíslason Byggingarfulltrúi
  • Ívar Páll Bjartmarsson Nefndarmaður
Fundargerð ritaði: Guðmundur Úlfar Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Víkurbraut 26 - umsangarbeiðni

2505014

Hótel Drangshlíð ehf. sækur um rekstrarleyfi fyrir gistastað í flokki 4-B, stærra gistiheimili, fyrir allt að 60 gesti í gistirými og allt að 80 gesti í veitingarými að Víkurbraut 26.
Samþykkt er að veita leyfi fyrir allt að 60 gesti í gistirými, en gerð er athugasemd við að veita leyfi fyrir allt að 80 gesti í veitingarými þar sem að ekki hefur verið sýnt fram á nægjanlega fjölda bílastæða við mannvirkið.

2.Sólheimahjáleiga Gistihús- umsagnarbeiðni

2602005

Óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa og slökkviliðs vegna nýs rekstrarelyfis í flokki 4-B stærra gistiheimili, að Sólheimahjáleigu, fasteignanúmer F2188442, F2321812, og F2188438. Umsækjandi er Húsá ehf. Sótt er um leyfi fyrir 44 í gistingu og 60 í veitingarými.
Ekki er gerð athugasemd við veitingu rekstrarleyfis að Sólheimahjáleigu fyrir 44 í gistingu og 60 í veitingarými.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skammidalur 2 - Flokkur 1

2602007

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 830 m2 fjárhúsi í Skammadal 2 skv. uppdráttum unnum af EFLA verkfræðistofa, dags. 05.02.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suður-Foss - Flokkur 1

2602011

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi og afskráningu úr fasteignaskrá á mhl. 03 á Suður Fossi L163115. Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
- Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs liggi fyrir sbr. gr. 15.2.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Austurvegur 20 - Flokkur 1

2512009

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á tveimur hæðum við núverandi hús ásamt breytingum innanhúss á núverandi byggingu. Uppdrættir eru unnir af Pro-Ark teiknistofu, dags. 02.04.2025. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
- Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Klettsvegur 1 - Flokkur 3

2602006

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 3200 m2 viðbyggingu við núverandi hótelbyggingu að Klettsvegi 1 í samræmi við uppdrætti unna af A2F arkitektar, dags. 11.02.2026. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Afgreiðslu málsis er frestað þar sem að vinnu við deiliskipulag svæðisins er ekki lokið.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir