Tónskóli Mýrdalshrepps óskar eftir fjölhæfum tónlistarkennara í 50% starf.

Starfið felst m.a. í kennslu á gítar, rafmagnsgítar, rafbassa og trommusett auk annarrar kennslu í samræmi við menntun, áhuga og reynslu kennarans. Reynsla af kennslu á blásturshljóðfæri æskileg.

Tónskóli Mýrdalshrepps er í góðum tengslum við grunn- og leikskóla.

Laun: samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra Sveitarfélaga og FÍH/FT

Menntun og færni:

  • Réttindi til kennslu í tónlistarskóla og/eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsmenntun er æskileg en ekki skilyrði.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og sveigjanleiki
  • Góð færni í hljóðfæraleik.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum nauðsynleg.
  • Gott vald á íslensku nauðsynlegt.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknir eða frekari upplýsingar berist á netfangið tonskoli@vik.is , eða í síma hjá Briani 892-0390

Umsóknarfrestur er til 15. Júní 2021.