Þórisholt - Deiliskipulagstillaga

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir Þórisholt.

Deiliskipulagstillaga nær yfir 3,4 ha. svæði og gerir ráð fyrir endurgerð núverandi útihúsa, viðbyggingu á öðrum húsum og nýbyggingum sem tengjast fyrst og fremst ferðaþjónustu.

Deiliskipulagstillagan liggur frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og má nálgast hér frá 27. október 2021 til og með 10. desember 2021.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 10. desember 2021.