Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur vinna sameiginlega að gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum, en þessi sveitarfélög standa sameiginlega að byggðasamlaginu Hulu sem sér um úrgangsmálin á svæðinu. Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, liggur nú fyrir og gefst almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum sínum á framfæri áður en áætlunin verður afgreidd af hlutaðeigandi sveitarstjórnum. Hægt er að kynna sér tillöguna á heimasíðum sveitarfélaganna og á vefsíðu Environice (sjá tengil hér að neðan) en Environice hefur aðstoðað við áætlunargerðina. Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi mánudaginn 2. mars 2026 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:
Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
v/ Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi
Hvanneyrargötu 3
311 Hvanneyri
Útgáfa: Svæðisáætlun Hula Tillaga 251121