Starf í Íþróttamiðstöð

Laust er til umsóknar starf í vaktavinnu við Íþróttamiðstöðina í Vík í Mýrdal. Um er að ræða 100% starf.

Sundkunnátta, snyrtimennska og góð þjónustulund áskilin.

Við leitum að starfsmanni sem er traustur, reglusamur og vandvirkur.

Íþróttamiðstöðin er reyklaus vinnustaður.

Starfið felur m.a. í sér:

  • afgreiðslu,
  • laugarvörslu,
  • þrif og aðra almenna þjónustu við gesti Íþróttamiðstöðvarinnar.

Starfsmaður þarf að hafa eftirlit með kvennaklefa og því leitum við að konu í starfið.

Viðkomandi þarf að gangast undir öryggispróf sundstaða og hafa/taka skyndihjálparnámskeið, hreint sakavottorð skilyrði.

Laun eru skv. samningi launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Suðurlands.

Nánari upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri í síma 487-1210 eða forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar

Umsóknir sendist á sveitarstjori@vik.is 

Umsóknarfrestur til 3. október 2021.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.