Skipulagssamkeppni um nýtt hverfi í Vík

Mýrdalshreppur efnir í samráði við Arkitektafélag Íslands til framkvæmdasamkeppni um verkefnið Austurbyggð Víkur – skipulagssamkeppni um nýtt hverfi í Vík í Mýrdal.

Markmið samkeppninnar er að gera tillögu að fjölbreyttu og lifandi íbúðarhverfi í tengslum við verslun- og þjónustu með fallegt og spennandi heildaryfirbragð. Tillagan taki mið af skuldbindingum sveitarfélagsins um íbúðauppbyggingu og lóðaframboð til næstu ára og sjónarmiðum sem komu fram í íbúakönnun. Hverfið endurspegli heildarsvip og staðaranda bæjarins, sérstöðu hans og sögu. Horft verður til samspils íbúðarbyggðar og verslunar- og þjónustu á svæðinu og það hvernig ný íbúðarbyggð tengist bænum og náttúrunni umhverfis Vík.

Samkeppnislýsingu og nánari upplýsingar má nálgast á vef Arkitektafélags Íslands: 

https://www.honnunarmidstod.is/ha-frettir/skipulagssamkeppni-um-nytt-hverfi-i-vik-i-myrdal