Skipulags- og matslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 – og deiliskipulag fyrir Ytri-Sólheimar 1, 1a og lóð

Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, er kynnt skipulags- og matslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 og nýtt deiliskipulag.

Lýsingin tekur til breytinga á verslunar- og þjónustusvæði V26, Gisti- og ferðaþjónusta þar sem stækka á reitinn og auka byggingarmagn innan hans.

Skipulags- og matslýsing þessi liggur frammi hjá skipulags-og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík eða má nálgast hér frá 23. júní 2021 til og með 20. júlí 2021.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út þriðjudaginn 20. júlí 2021.