Síðasti skiladagur lista til framboðs í sveitarstjórnarkosningum 2026

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Mýrdalshreppi, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Þann sama dag tekur yfirkjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum á skrifstofu sveitarfélagsins að Smiðjuvegi 7 í Vík milli kl. 11:00 og 12:00.

Yfirkjörstjórn hefur samþykkt að nýta rafrænt meðmælendakerfi vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí 2026. Sjá nánari upplýsingar hér.

Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar til framboða er að finna á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands, kosning.is.

Yfirkjörstjórn Mýrdalshrepps.