Mýrdalshreppur auglýsir til sölu Schäffer 3150 S liðlétti, árgerð 2006.
Helstu upplýsingar:
Vélin er notuð og ber þess merki, m.a. hvað varðar yfirborðsryð og almennt útlit. Hún er seld í því ástandi sem hún er við skoðun og eru áhugasamir kaupendur hvattir til að skoða vélina áður en tilboð er lagt fram.
Vélin er staðsett í Vík í Mýrdal.
Óskað er eftir skriflegum tilboðum í vélina. Tilboð skulu berast Mýrdalshreppi eigi síðar en 2. september 2026 kl. 12:00 á netfangið sveitarstjori@vik.is.
Nánari upplýsingar og aðgangur að vélinni til skoðunar fást hjá Kristjáni Þórðarsyni forstöðumanni áhaldahúss í síma 8978303 / ahaldahus@vik.is.
Kaupandi annast flutning vélarinnar af afhendingarstað og ber kostnað af honum.
Mýrdalshreppur áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.
