SASS óskar eftir því að ráða starfsmann í stöðu verkefnastjóra tímabundið til eins árs

Tímabundin staða verkefnastjóra í úrgangsmálum

Samtök Sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) óskar eftir því að ráða starfsmann í stöðu verkefnastjóra tímabundið til eins árs, til að fara með umsjón verkefna Sorpstöðvar Suðurlands (SOS) með sérstaka áherslu á greiningu tækifæra til samvinnu sveitarfélaga á Suðurlandi í úrgangsmálum. Verkefnastjórinn heyrir undir framkvæmdastjóra SASS og starfar náið með stjórnum SOS og SASS.

Nánar um SASS: www.sass.is
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Haldbær þekking og reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð þekking á stjórnsýslu og umhverfi sveitarfélaga á Suðurlandi
  • Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu
  • Góð samskiptafærni
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, framsýni og metnaður
  • Góð tölvukunnátta
  • Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining tækifæra til samvinnu sveitarfélaga á starfssvæði SOS og SASS í úrgangsmálum
  • Umsjón með verkefnum tengdum lokun og vöktun urðunarsvæðis
  • Umsjón og hagsmunagæsla vegna eignarhluta SOS í fyrirtækjum á sviði úrgangsmála
  • Undirbúningur funda, þ.m.t. fundarboðun, ritun og birting fundargerða
  • Samskipti og upplýsingagjöf til aðildarsveitarfélaga
  • Fulltrúastörf í svæðisráði/samráðsvettvangi um úrgangsmál
  • Fræðsla, miðlun og upplýsingagjöf í úrgangsmálum á starfssvæði SOS
  • Aðkoma að fjárhagsáætlunargerð
  • Almenn verkefni á skrifstofu
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd úrgangsmálum á vegum SASS og SOS