Samningur um aukið framboð íbúða

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps við un…
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps við undirritun samningsins

Undirritaður hefur verið samningur milli Mýrdalshrepps, innviðaráðuneytis og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um aukið framboð íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu á tímabilinu 2023-2032 og fjármögnun uppbyggingar hagkvæma íbúða og félagslegs húsnæðis.

Samningurinn byggir á rammasamningi ríkis og sveitarfélaga frá 12. júlí 2022 þar sem sameinast var um sýn og stefnu í húsnæðismálum til að tryggja uppbyggingu íbúða í samræmi við þörf. Rammasamningurinn sjálfur byggði á tillögum starfshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði þar sem mikil samstaða var um mikilvægi þess að tryggja aukið framboð íbúða til að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Meginmarkmið rammasamningsins eru þau að byggðar verði um 35 þús. íbúðir á 10 árum og um 4 þús. íbúðir á ári á fyrri hluta samningstímans. Annað meginmarkmið samningsins er að 30% nýrra íbúða verði hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði og 5% félagslegar íbúðir. Töluleg markmið verða þó endurmetin árlega í tengslum við gerð húsnæðisáætlana sveitarfélaga og mat á íbúðaþörf.

Í samningnum við Mýrdalshrepp kemur fram það markmið að byggðar verði 200 nýjar íbúðir á næstu 10 árum með áherslu á kröftuga uppbygginu á fyrri hluta tímabils. Stefnt verði að því að byggja allt að 94 íbúðir á ári á næstu fimm árum og er það tvöföldun miðað við það sem fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.

Þær íbúðir sem þarna falla undir eru íbúðir byggðar á grundvelli stofnframlaga, húsnæði fyrir stúdenta, tiltekna hópa eldri borgara og öryrkja sem og íbúðir sem byggðar eru fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur og falla undir hlutdeildarlán.

Samkomulagið markar tímamót fyrir Mýrdalshrepp og styður við markmið sveitarfélagsins um heilbrigðan húsnæðismarkað fyrir ört fjölgandi hóp íbúa. Mýrdalshreppur verður við undirritun samkomulagsins annað sveitarfélagið á landinu til þess að marka skýra stefnu um aukið framboð íbúðarhúsnæðis á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga. Aukið framboð íbúða er lykilatriði í því að styðja við sjálfbæra byggðaþróun og samvinna ríkis og sveitarfélagsins er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingaráformum Mýrdalshrepps.