Römpum upp Ísland komu til Víkur

Á myndinni eru: Starfsmenn Römpum upp Ísland auk Vigfús Páls Auðbertssonar & Sveins Sigurðssonar hjá…
Á myndinni eru: Starfsmenn Römpum upp Ísland auk Vigfús Páls Auðbertssonar & Sveins Sigurðssonar hjá Smiðjunni Brugghúsi auk Einars Freys Elínarsonar sveitarstjóra Mýrdalshrepps

Starfsmenn Römpum upp Ísland komu til Víkur í síðustu viku og lögðu ramp við innganginn að Smiðjunni.

Verkið er hluti af átakinu Römpum upp Ísland, en stefnt er að því að settir verði upp 1.000 rampar víðs vegar um land til þess að bæta aðgengi allra að fjölbreyttri þjónustu.

Starfsmönnum verkefnisins eru færðar þakkir fyrir vel unnið verk og rekstraraðilum í húsinu hamingjuóskir með bætt aðgengi á staðnum.

Sveitarfélagið mun óska eftir því við forsvarsmenn Römpum upp Ísland að skoðuð verði fleiri verkefni innan sveitarfélagsins í ljósi fjölda fólks sem hingað kemur og umfangs þjónustu sem hér er boðið upp á.