Nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæsla í Vík

Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið.

Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

Samlegðaráhrif á Sléttuvegi

Nýja hjúkrunarheimilið mun leysa af hólmi hjúkrunar- og dvalarheimilið Hjallatún sem var opnað árið 1989. Þar eru í dag 18 hjúkrunarrými en nýja heimilið verður stærra með góðri aðstöðu fyrir íbúana. Núverandi húsnæði uppfyllir ekki nútímakröfur um aðbúnað vegna reksturs á hjúkrunarheimilum. Brýnt er meðal annars að tryggja íbúum aðgang að einstaklingsrýmum með baðherbergi.  

Húsnæði heilsugæslunnar í Vík er komið til ára sinna og samkvæmt þarfagreiningu hvorki raunhæft né hagkvæmt að ráðast í endurbætur á því. Þess vegna hefur verið ákveðið að tryggja starfseminni nýtt og nútímalegt húsnæði sem uppfyllir kröfur um gæði, hagkvæmni og þróun þjónustunnar til næstu ára. Úr varð að sameina nýtt húsnæði fyrir hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð í einni byggingu með það fyrir augum að í því felist samlegðaráhrif við framkvæmdirnar og þar með hagstæðara leiguverð. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir munu á næstunni efna til útboðs á framkvæmdinni.

Stór dagur fyrir Mýrdalshrepp

„Dagurinn í dag markar tímamót í þjónustu við eldra fólk í Vík í Mýral. Um árabil hefur Hjallatún gegnt mikilvægu hlutverki í þjónustu við aldraðra í Mýrdalshreppi. Þar hefur verið sinnt af alúð og fagmennsku þeim sem þurfa á hjúkrun og umönnun að halda. En við vitum öll að húsnæðið, sem reist var árið 1989, uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem við gerum í dag til aðbúnaðar og þjónustu. Því var brýnt að stíga skref til framtíðar. Skilaboðin hér í dag eru skýr: Við ætlum að tryggja öldruðum í Vík í Mýrdal besta mögulega aðbúnað og þjónustu,“ segir Inga Sæland.

„Gæði þjónustu byggjast á mörgum þáttum og ekki síst fólkinu sem veitir hana. Vandað og vel hannað húsnæði hefur einnig gríðarlega mikil áhrif og styður við gott starf í þágu þeirra sem njóta þjónustunnar. Það er mikil og brýn þörf á endurnýjun húsnæðis heilsugæslunnar og hjúkrunarheimilisins hér á Vík og það verður stórkostleg breyting fyrir íbúa á svæðinu þegar þau áform sem innsigluð voru í dag verða að veruleika,“ segir Alma D. Möller.

„Þetta er stór dagur fyrir Mýrdalshrepp og tímamót í uppbyggingu mikilvægrar grunnþjónustu í sveitarfélaginu. Nýtt hjúkrunarheimili og ný heilsugæsla við Sléttuveg munu bæta aðbúnað íbúa, styrkja starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks og tryggja að þjónustan þróist í takt við þarfir samfélagsins til framtíðar. Við höfum lengi lagt áherslu á að hér þurfi nútímalegt húsnæði fyrir þessa lykilþjónustu og það er afar ánægjulegt að sjá þessi áform nú taka á sig skýra mynd. Ég vil þakka ráðherrum og fulltrúum ríkisins fyrir gott samstarf og ríkan vilja til að standa með samfélaginu hér í Vík,“ segir Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri í Vík.