Nýtt deiliskipulag Túnahverfi

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Túnahverfi.

Deiliskipulagstillaga gerir ráð fyrir nýju deiliskipulagi í Túnahverfi, Króktúni, en með þessu deiliskipulagi fellur úr gildi deiliskipulag Suðurvíkurvegur- Mylluland og deiliskipulag Túnahverfis. Þannig fæst heildar deiliskipulag fyrir þetta svæði og þannig betur hægt að samræma uppbyggingu innan svæðisins sem skal vera í takt við aðliggjandi íbúðarbyggð.

Deiliskipulagstillagan liggur frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík eða má nálgast hér: DSK BR Túnahverfi greinagerð og DSK BR Túnahverfi uppdráttur frá 9. desember 2021 til og með 22. janúar 2022.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 22. janúar 2022.

George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshrepps