Námsstyrkur Samband vestur skaftfellskra kvenna

Samband vestur skaftfellskra kvenna auglýsir eftir umsóknum til námsstyrks sambandsins 2024. Umsækjendur þurfa að hafa lögheimili í V-Skaftafellssýslu og stunda reglubundið nám á framhaldsskólastigi, en mega ekki vera í lánshæfu námi hjá Menntasjóði námsmanna.
Með umsókninni skal fylgja staðfesting á skólavist og upplýsingar um námið í stuttu máli, netfang og sími. Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á svsk@kvenfelag.is fyrir 15. desember 2023 til kl 24.00.
Stjórn S.V.S.K.