SVEITARSTJÓRI
Mýrdalshreppur leitar að öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra.
Leitað er að kraftmiklum, jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn að vinna að skemmtilegum og krefjandi verkefnum.
Framundan eru stór og spennandi verkefni í ört vaxandi fjölmenningar samfélagi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og ábyrgð á framfylgd stefnu sveitarstjórnar
- Náið samstarf við sveitastjórn og nefndir, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum
- Annast samskipti við íbúa, stofnanir, fyrirtæki og önnur sveitarfélög og gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við
- Ábyrgð á stjórnsýslu, stefnumótun og mannauðsmálum
- Vinna að hagsæld svæðisins
- Önnur verkefni í samstarfi við sveitarstjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri, stjórnun, fjármálum, stefnumótun og mannauðsmálum
- Góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Brennandi áhugi á byggðamálum, eflingu atvinnulífs og samfélagsins
- Mikil færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, leiðtogahæfni og lausnamiðuð hugsun
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Reynsla af störfum á sveitastjórnarstigi æskileg
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2026
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.